Munið þið eftir þessu - Stephen "Tin Tin" Duffy

Stephen Anthony James Duffy er fæddur í Birmingham á Englandi 30.maí árið 1960. Hann stofnaði hljómsveit ásamt félaga sínum John Taylor og vini hans Nick Rhodes seint á áttunda áratugnum. Árið eftir að Duffy yfirgaf sveitina sló hún rækilega í gegn, hún heitir Duran Duran.

Þetta lag gaf hann út árið 1985, og það eru ábyggilega margir sem muna eftir því. Það heitir Icing on the cake og var gríðarlega mikið spilað það sumarið. Lagið kom út í kjölfar hins vinsæla Kiss me og endaði í 14. sæti breska vinsældalistans í júní þetta ágæta sumar. Næsta smáskífulag TinTins á var svo Unkiss that kiss sem rifjar örugglega upp góðar minningar hjá mörgum.

Hann hefur stússað heilmikið í tónlist síðan þetta var, hefur meðal annars skrifað slatta af lögum fyrir hin ofurvinsæla Robin Williams, meðal annars lagið Radio.

En hoppum rúm 20 ár aftur í tímann, látum okkur vaxa sítt að aftan og smellum risastórum herðapúðum í jakkana okkar.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

 Það uxu á mig stórir eyrnalokkar við að heyra þetta lag.

Sporðdrekinn, 27.7.2008 kl. 17:53

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Sem fara sennilega aldrei aftur

Markús frá Djúpalæk, 27.7.2008 kl. 18:04

3 Smámynd: Sporðdrekinn

 Nei ætli það.

Ju! Ég verð með stóra bleika eyrnalokka for the rest of my life  Hjálp!!

Sporðdrekinn, 27.7.2008 kl. 18:14

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Smart

Markús frá Djúpalæk, 27.7.2008 kl. 20:34

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Segðu! Ég er búin að eyða síðustu sex klukkutímum í að reyna að annað hvort ná þessum lokkum af mér eða lita þá svarta. Enn þá hefur mér hvorugt tekist. Ég er að fá fitt hérna!

Sporðdrekinn, 28.7.2008 kl. 02:37

6 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Á meðan þú ert ekki að fá fatt þá er þetta í lagi

Markús frá Djúpalæk, 28.7.2008 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband