Granada á Spáni
11.7.2008 | 18:31
Alhambra höllin í Granada - þangað langar mig - aftur!
Spánskt orðtak segir, "Sá hefur ekkert séð, sem eigi hefur séð Granada". Það eru menjarnar frá tímum Mára sem gera borgina svo forvitnilega. Á sínum tíma var þessi borg á Suður-Spáni einstæð í Evrópu. Háskólinn í Kordóba var meðal frægustu háskóla í víðri veröld og sóttu hann stúdentar þúsundum saman víðsvegar að - einnig frá Norðurlöndum.
Í borg eins og Granada voru 70 opinber bókasöfn. Göturnar voru steinlagðar og jafnvel lýstar upp. Enn ber Granada sterkan svip frá þessum tíma, en það er einkum tvennt sem áhugavert er að skoða í borginni, Alhambra höllin og Dómkirkjan þar sem Ferdinand og Isabella eru jarðsett. Alhambra stendur uppi á fjallsrana en fyrir neðan breiðir úr sér hinn frjósami dalur umhverfis fljótið Darro. Vegurinn liggur í kröppum beygjum upp brattar brekkurnar að höllinni. Undir þykku laufskrúði álmsins má leita hælis fyrir brennandi geislum sólarinnar.
Það prýðir smágerð og yndisleg fegurð höllina að innan og þungir hrjúfir múrarnir að utanverðu eru í einkennilegu ósamræmi við hana. Inni í hallargarðinum og höllinni eru salir, súlnagöng, trjágöng og skrautgarðar. Við erum stödd í einhvers konar draumahöll.
Frægasti staðurinn í Alhambra er Ljónagarðurinn, þar standa 128 marmarasúlur sem eru tengdar fíngerðum bogum. Í miðjum salnum er gosbrunnur úr alabasti sem 12 ljón úr marmara halda uppi. Úr munni ljónanna rennur vatnsbuna niður í kyrra laug. Appelsínutré standa í hverju horni garðsins.
Það er líka áhugavert að skoða böðin þar sem kalt og heitt vatn er leitt í tveimur rennum úr hitunarherbergi inn á sjálft baðið. Veggirnir eru skreyttir fagurlega í allskyns litum en þakið er rofið til að hleypa inn fersku lofti.
Ég hef ekki komið til Granada síðan árið 1988 en dulmögn staðarins eru enn í fersku minni og mér þykir kominn tími til að heimsækja þessa töfrandi borg, fyrr en síðar.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Athugasemdir
Skil þig ! Falleg mynd.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 11.7.2008 kl. 20:14
Sæll Markús:)
Ég hef komið til Alhambra og mun aldrei gleyma þessum ævintýralega stað:)
Vona að þú hafir það gott, kær kveðja,
Linda Gísla
Linda Samsonar Gísladóttir, 11.7.2008 kl. 21:12
Takk fyrir innlitið báðar tvær. Takk sömuleiðis Linda.
Markús frá Djúpalæk, 11.7.2008 kl. 21:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.