Örlögin

 

George Bush fékk hjartaáfall og dó.  Hann fór beinustu leið til helvítis, þar sem kölski sjálfur tók á móti honum og sagði: “Ég er í svolitlum vandræðum, þú ert á listanum mínum en mig bráðvantar pláss svo ég er með hugmynd.  Það eru hérna þrjár manneskjur, sem voru ekki alveg jafn vondar og þú, ég sleppi einni af þeim lausri í staðinn fyrir þig og þú færð meira að segja að velja hver það verður”.George fannst þetta góð hugmynd og kölski opnaði dyrnar á fyrsta herberginu.  Þar inni var Richard Nixon í stórri laug fullri af vatni sem hann kastaði sér ofan í aftur og aftur en kom alltaf tómhentur upp aftur.“Ekki séns!” Gargaði Goggi “Ég er ekki góður sundmaður og ég held ég gæti ekki gert þetta allan daginn”.  Kölski leiddi hann þá að næsta herbergi en þar inni var Tony Blair með sleggju í hönd og var að höggva grjót.“Nei, ég þjáist af meini í öxl og myndi vera með stöðugar kvalir ef ég ætti að höggva grjót daginn út og inn”.Þá opnaði kölski þriðju og síðustu dyrnar.  Þar inni lá Bill Clinton á gólfinu og ofan á honum var Monica Lewinsky að gera það sem hún gerir best.Gerge Bush leit á kölska í forundran og sagði: “Já, ég ætti að ráða við þetta”.Kölski brosti og sagði: “Monica, þú mátt fara”.

Vona að ég verði ekki bannaður fyrir myndbirtinguna


mbl.is SÞ ræðir mál Rússa og Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

.

Gunnar Gunnarsson, 22.4.2008 kl. 15:06

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 15:36

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 22.4.2008 kl. 15:44

4 Smámynd: Linda litla

hehehe góður

Linda litla, 22.4.2008 kl. 16:18

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 22.4.2008 kl. 17:52

6 Smámynd: Tómas Þráinsson

Það vantar bara fleiri svona gullkorn í moggabloggið. Styð þig heilshugar

Tómas Þráinsson, 23.4.2008 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband