Málfrelsið í Rödd Alþýðunnar

Í fyrramálið kl. 7 verður Rödd Alþýðunnar, Bloggþátturinn á Útvarpi Sögu, á dagskrá eins og alla mánu- og miðvikudaga. Meðal gesta verður Skúli Skúlason sem nýlega var gert að loka hjá sér bloggsíðu á mbl.is vegna ásakana um atlögur að islam. Ásamt honum kemur Guðsteinn Haukur Barkarson sem ætlar að tjá sig um meinta ritskoðun á blogginu, og um málfrelsið almennt.  Það er óhætt að lofa lesendum hér, og hlustendum þar snörpum og skemmtilegum umræðum um grundvöll mannréttinda, hvað svo sem fólki kann að finnast um lokunina á bloggi Skúla Skúlasonar.

Auðvitað verður tekið á fleiri málum á morgun, við fáum að heyra í þingmanni sem lætur sig málefni öryrkja og aldraðra miklu máli skipta. En auðvitað verður léttleikinn ekki langt undan heldur, enda nokkurskonar auka föstudagur, meistari Jón Kr. Ólafsson kemur í heimsókn við annan mann, þannig að það borgar sig svo sannarlega að hlusta.

Munið að stilla á Útvarp Sögu í fyrramálið kl. 7.


mbl.is Óánægja með lokun umdeilds bloggs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Útvarp Saga..... hvar næ ég því ?? Það gæti verið gaman að fylgjast með.

Linda litla, 22.4.2008 kl. 19:55

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Ef þú býrð í Reykjavík er tíðnin 99,4. Verð að viðurkenna að ég man ekki alveg hver hún er annars staðar. En auðvitað er hægt að hlusta á netinu á www.utvarpsaga.is

Markús frá Djúpalæk, 22.4.2008 kl. 20:00

3 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Hlakka til að sjá þig Markús minn. Takk fyrir allt saman!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 22.4.2008 kl. 20:56

4 Smámynd: Linda litla

Ég er í borginni, ég reyni að finna þetta í fyrramálið. Takk takk

Linda litla, 22.4.2008 kl. 21:18

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Kolbrún, þátturinn verður endurtekinn kl. 13 á morgun, og einnig kl. 20 ef ske kynni að þú svæfir yfir þig.

Markús frá Djúpalæk, 22.4.2008 kl. 22:36

6 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Rosalega spennandi! Hlakka til að hlusta.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 22.4.2008 kl. 22:53

7 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þetta er greinilega þáttur sem vert væri að vakna til að hlusta á.

Eiríkur Harðarson, 23.4.2008 kl. 01:39

8 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

well done

Meiriháttar þáttur, Markús!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 23.4.2008 kl. 08:54

9 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk fyrir Markús, þetta tókst vel upp hjá okkur og er ég afar þakkláttur að þú tókst mig í viðtal.  

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.4.2008 kl. 09:36

10 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Guðsteinn, takk fyrir komuna, þú stóðst þig vel!

Markús frá Djúpalæk, 23.4.2008 kl. 09:44

11 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk fyrir það Markús, en hvenær er svo endurflutningur á þessu svo maður geti heyrt í sjálfum sér?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.4.2008 kl. 10:40

12 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Þetta gekk svona ljómandi vel og sjónarmið Skúla og stuðningsmanna hans þóttu mér bara koma nokkuð skýrt fram.

Segir hin óháða eiginkona Guðsteins...  (fannst hann auðvitað standa sig mjög vel).

Bryndís Böðvarsdóttir, 23.4.2008 kl. 10:50

13 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Guðsteinn, þátturinn er endurfluttur í dag kl. 13 og í kvöld kl. 20. Og örugglega eitthvað um helgina. Já, Bryndís, varstu ekki ánægð með Guðstein?

Markús frá Djúpalæk, 23.4.2008 kl. 10:53

14 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Verður þetta kannski ekki endurflutt? 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 23.4.2008 kl. 14:40

15 identicon

Ágætu bloggvinir og aðrir gestir,

Ég mun nú setja upp margar spegilsíður af hrydjuverk.blog.is.  Sú fyrsta  er langt komin í uppsetningu og heitir  http://hermdarverk.blogcentral.is

Verið velkomin öll.

Skúli Skúlason 23.4.2008 kl. 20:27

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband