Fyrirsögn ársins
21.4.2008 | 18:16
Hvort sem starfsfólk ohfsins er svona rosalega óeðlilega haldið í launum eða ekki, og þá hvort sem það er upp eða niður á við, þá breytir það ekki því að þarna er komin fyrirsögn ársins: Pukur ekki að undirlagi ráðherra. Hún er þrungin merkingum þessi. Það má t.d. lesa í þessa fyrirsögn að pukur geti stundum verið að undirlagi ráðherra. Það má líka lesa í fyrirsögnina að pukur geti alveg verið hluti af eðlilegum stjórnarháttum. Í þriðja lagi mætti ætla að pukur sé stundað reglulega í ohfinu. Það má örugglega með góðu hugmyndaflugi finna fleiri merkingar...
Snilldin ein.
Pukur ekki að undirlagi ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:18 | Facebook
Athugasemdir
PUKUR. Flott orð. Komum að pukrast.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 21.4.2008 kl. 21:08
að undirlagi hvers viljum við pukrast?
Hrönn Sigurðardóttir, 22.4.2008 kl. 08:56
Mér sýnist undirlagið koma frá Helgu Guðrúnu....
Markús frá Djúpalæk, 22.4.2008 kl. 10:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.