Magnað...
16.4.2008 | 11:14
... og forvitnilegt að könnun yrði gerð á þessu hér. Mér skilst þó að bretar hafi betra eftirlit en við, með því hverjir koma inn í landið og geta þá hugsanlega vísað meintum glæpamönnum frá við hliðið.
Ég veit það af samtölum mínum við pólverja að þeim líkar ekki að sjá eftirlýsta pólska glæpamenn á vappinu í miðborg Reykjavíkur, og auðvitað viljum við ekki hafa neina glæpamenn hér.
Pólska glæpaaldan er goðsögn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"0og auðvitað viljum við ekki hafa neina glæpamenn hér."
Þú semsagt ert að leggja til að íslenskum ríkisborgurum sem brjóta lög verði vísað úr landi... flott.
jg (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 11:31
jg... já er það ekki bara snilld. Reyndar var ég að reyna að meina að fólk almennt vildi vera laust við glæpi og þá sem fremja þá.
Markús frá Djúpalæk, 16.4.2008 kl. 11:36
Mér finnst þeir góðir að bera kennzl á eftirlýsta glæpamenn. Eru myndir af þeim á veggjum í Póllandi? Ekki þekki ég neinn eftirlýstann, mér vitanlega.
Ásgrímur Hartmannsson, 16.4.2008 kl. 12:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.