Það þarf að tryggja hamingju barnanna sinna

Kona ein átti þrjár dætur. Í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað mamman hana að vera fljóta að skrifa heim og segja gömlu konunni hvernig kynlífið væri hjá hinni nýgiftu.....
 
Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst gömlu konunni bréfið frá dóttur sinni.
Á því stóð aðeins "Myllukökur Myllubrauð".
Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók hún eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún vað að blaða í Dagblaðinu síðar um kvöldið.
En þar stóð "Myllukökur Myllubrauð.. ávallt seðjandi".
Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa að elstu dóttur sinni, henni væri vel sinnt.

En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar til gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni.
Þar stóð aðeins "Ingvar og Gylfi". Kella var nú fljót að leita að Dagblöðunum og fann að lokum
auglýsingu frá Ingvar og Gylfa þar sem stóð "Nýi rúmgaflinn frá okkur..King size og extra langur".
Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari dóttur sinni.

Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið.
Í bréfinu stóð aðeins eitt orð "Flugleiðir".
Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í Dagblaðinu og á endanum fann hún eina.
En eftir að hafa lesið auglýsinguna leið yfir kerlinguna því þar stóð: "Þrisvar á dag, sjö daga vikunnar, á alla áfangastaði!!!!!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þær eru nú hyggnar þessar mömmur, samt er fátt auðveldara en að ofbjóða þeim. Þó er eiginkonan trúlega fljótari að verða ofboðið.

Eiríkur Harðarson, 2.4.2008 kl. 13:35

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Maður verður auðvitað alltaf að gæta tungu sinnar

Markús frá Djúpalæk, 2.4.2008 kl. 14:05

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

-Hvert var vandamálið..?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 2.4.2008 kl. 15:21

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

No problem

Markús frá Djúpalæk, 2.4.2008 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband