Eyjólfur að hressast - aðrir kannski óhressari

Þetta er auðvitað góð tíðindi en betur má ef duga skal. Vonandi réttir krónugreyið meira úr kútnum, það er gott fyrir þjóðina.

En hvernig dettur ráðamönnum þjóðarinnar í hug að ætla að taka lán til að redda gæjunum sem eru búnir að vera að græða á góðærinu, byggjandi sumarhallir, haldandi afmælisveislur fyrir hundruð milljóna, kaupandi einkaþotur og annan óþarfa meðan lýðurinn horfir á? Eigum við nú að bjarga mönnunum sem fengu bankana og önnur fyrirtæki á silfurfati?

Verða menn sem gekk svona vel fyrir hálfu ári ekki bara að bjarga sér sjálfir, það þarf sá að gera sem horfir á húsnæðis- og bílalánið sitt hækka um helming á örstuttum tíma. Hvers vegna ekki hinir?

Hvar er réttlætið?


mbl.is Krónan styrkist um 2,36%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband