Evrópuverð
1.3.2008 | 14:19
Í dag hef ég heyrt glymja í útvarpi auglýsingar frá Blómavali um eitthvað sem þeir kalla evrópuverð. Ef ég skil auglýsingarnar rétt þá þýðir þetta að viðskiptavinum verslunarinnar er þessa dagana boðið svipað verð og tíðkast í Evrópu. Þetta auglýsa þeir án þess að blikna. Eða skammast sín. Auðvitað ætti maður að vera svo mikil hæna að finnast frábært að verslun bjóði tímabundið það sem hugsanlega mætti kallast eðlilegt vöruverð. En svo fór ég að hugsa og ákvað að hætta að vera hæna um stund. Er þetta ekki bara yfirlýsing um það að Blómaval og hundruð ef ekki þúsundir annarra fyrirtækja, með fulltingi ríkisins, hamast við að hafa af okkur fé á hverri einustu stund, alla daga, allt árið um kring? Og reyna svo að slá á sársaukann með "evrópuverði", "vsk-fríum dögum" og öðrum vel upphugsuðum meðulum?
Jú. Þannig er þetta bara. Við höldum áfram að láta teyma okkur inn í verslanir og fyrirtæki sem selja vörur og þjónustu á himinháu verði og við verslum eins og við eigum lífið að leysa. Og tuðum svo á kaffistofunni. Eða á blogginu.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.