Úti er alltaf að snjóa

0veturMér finnst nú yfirleitt mjög gaman þegar náttúruöflin gera vart við sig með þeim hætti sem þau hafa gert undanfarið. Það er búið að snjóa nokkuð hressilega í all nokkurn tíma, og snjókoman í nótt var alveg ekta. Það fór allt á kaf. Morguninn fór í að ýta bílum sem er alltaf ánægjulegt, einkum þegar maður er í svona góðu formi.

Mér finnst alltaf jafn magnað þegar menn reyna að leggja af stað út í umferðina á vanbúnum bílum, jafnvel afturhjóladrifnum sportbílum á sumardekkjum. Það er ekki nóg með að þeir sem láta sér detta slíkt í hug tefli sínu lífi og limum í hættu heldur er hættan sem samferðamönnum þeirra er búin jafnvel meiri. Þegar veðrið er eins og það er búið að vera undanfarið eiga menn bara að skilja bílinn eftir heima og taka leigubíl eða strætó.

Það er samt voða auðvelt að tala hátt um að taka strætó eða önnur almenningsfarartæki, því oft er nú ekki um auðugan garð að gresja í þeim efnum þegar veðrið verður svona. Það hverfa auðvitað flestir leigubílar og strætó gengur hægt og jafnvel illa.

Svo gerist ég bara bjartsýnn og vona að í kjölfar svona vetrar komi dásamlegt sumar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jamm - ég segi það með þér! Mér finnst svona veður dásamlegt!! Ég tölti einmitt fram hjá einum snemma í morgun sem spólaði máttvana hér á horninu. Mér fannst nú svo heimskulegt að láta sér detta í hug að fara á litlum fólksbíl af stað í svona færð að ég skipti yfir í brokk!

Enda búin að gefa út yfirlýsingu um að mér hugnist ekki heimskt fólk!

Hrönn Sigurðardóttir, 7.2.2008 kl. 11:55

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Eins gott að ég verði ekki í heimsku minni á ferli einhverstaðar á ferli í námunda við þig

Markús frá Djúpalæk, 7.2.2008 kl. 12:12

3 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Tvisvar sinnum á ferli meira að segja - eins og sést....

Markús frá Djúpalæk, 7.2.2008 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband