Á leið í veislu drottningar
19.11.2007 | 21:29
Ég er viðkvæmur, sköllóttur maður og með staurfót. Ég fékk boð fyrir nokkrum vikum um að mæta í partýið í kvöld hjá drottningunni. Þar sem öll partý hljóta að vera grímuböll ákvað ég að mæta þannig tilhafður en...mér datt enginn grímubúningur í hug, svo ég ákvað að skrifa bréf til búningaleigu einnar og fá hjá þeim tillögur að búningi sem gæti falið á mér skallann og staurfótinn.
Nokkrum dögum seinna fékk ég tölvupóst:
Kæri herra,
Við leggjum til að þú farir sem sjóræningi. Sjóræningjahatturinn kemur til
með að fela á þér skallann og með staurfótinn lítur þú alveg út eins og
sjóræningi.
Mér fannst þetta satt að segja hræðileg móðgun, þar sem þeir höfðu talað um að nýta fötlun mína í búninginn. Þess vegna settist ég niðurog skrifaði frekar harðort kvörtunarbréf til búningaleigunnar. Viku seinna fékk ég svar, annan tölvupóst:
Kæri herra,
Afsakaðu þetta með staurfótinn. Ef við hefðum vitað að þetta væri svona
viðkvæmt, þá hefðum við strax lagt til að þú færir sem munkur. Munka kufl
er svo síður að hann felur staurfótinn og með skallann, þá lítur þú alveg
úteins og alvöru munkur.
Núna varð ég alveg brjálaður. Skítt með staurfótinn, en að ætlast til
að ég myndi nota skallann á mér sem hluta af búningi tók alveg steininn
úr. Því skrifaði ég núna virkilega harðort kvörtunarbréf til bölvaðrar
búningaleigunnar.
Daginn eftir kom einn tölvupósturinn frá þeim:
Herra,
Finndu stóra fötu af karamellu. Helltu karamellunni yfir sköllóttan hausinn
á þér, stingdu staurfótnum upp í rassgatið á þér og farðu sem sleikipinni!
Demantsbrúðkaup drottningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hver er Jatvardur
Hildur (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 23:45
Játvarður var skírður Edward upp á engilsaxnesku.
Markús (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 08:16
Tókstu þig ekki vel út í afmælinu hennar Betu?
Brynja Hjaltadóttir, 24.11.2007 kl. 00:43
Ég tek mig alls staðar vel út
Markús frá Djúpalæk, 24.11.2007 kl. 10:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.