Spennandi!

Þessi hljómsveit er einfaldlega ein sú besta sem orðið hefur til í veröldinni. Að því leyti er hér um að ræða mikið tilhlökkunarefni fyrir aðdáendur hennar. Á móti kemur að svona endurkomur, eins og t.d. endurkoma Bítlanna árið 1995 geta verið skelfilegar. Þá er betra að muna hljómsveitirnar eins og þær voru, en ekki í einhverri vanhugsaðri og hræðilegri endurkomu. Spennandi er þetta samt sem áður enda snillingar á ferð.
mbl.is Led Zeppelin boðar til blaðamannafundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér sem gífurlegum Led Zeppelin aðdáanda finnst þetta slæmar fréttir. Besta rokkhljómsveit allra tíma ætti bara að hvíla áfram.

Stefán 

Stefán (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 17:01

2 identicon

Ekki laust við að þetta sé spennandi.  Gæti einnig orðið pínlegt fari allt á versta veg.  Held að þeir hafi kannski beðið aðeins of lengi með þetta.  Þeir þurfa að tækla þetta rétt og ég treysti því að það geri þeir.

Jóhann (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 17:04

3 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Það vona ég svo sannarlega. Með réttri tæklingu verður þetta glæsilegt, annars bara klúður er ég hræddur um. Bíðum og sjáum.

Markús frá Djúpalæk, 11.9.2007 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband