Yndislegt laugardagskvöld
1.9.2008 | 15:10
Á laugardagskvöldið gistum við hjá þeim öndvegishjónum Bryndísi og Ragnari sem reka Hótel Keili í Reykjanesbæ. Þetta er rosalega huggulegt hótel í hjarta bæjarins sem þau byggðu upp í sveita síns andlits. Herbergið var mjög notalegt með fallegu sjávarútsýni, það er yndislegt að láta sjávarniðinn svæfa sig. Þau hjón tóku afskaplega vel á móti okkur, sýndu okkur hótelið og sögðu okkur sögur af því þegar þau voru að koma húsinu í stand. Ragnar er hárskeri og hann hljóp til strax eftir að hann hafði klippt keflvíska kolla og mokaði innan úr húsinu í 3-4 tíma áður en hann fór heim og í sturtu, lagði sig í nokkra klukkutíma og svo áfram sama rútínan.
Við snæddum kvöldverð á stað við hlið hótelsins sem heitir Thai Keflavík og að öðrum slíkum stöðum ólöstuðum var þetta með betri thailenskum stöðum sem ég hef prófað. Magnús, sonur eigandans snerist í kringum okkur og við leyfðum honum að koma okkur á óvart með aðalréttina. Sem hann gerði á mjög jákvæðan hátt. Þessi staður, Thai Keflavík er notalega innréttaður og blessunarlega laus við niðursoðna Asíutónlist sem oft einkennir svoleiðis staði, maturinn góður og þjónustan til fyrirmyndar. Mæli með honum fyrir þá sem eiga leið til Keflavíkur.
Morgunverðurinn var gómsætur og notalegt að fylgjast með hótelstjóranum útbúa hann ofan í okkur. Ég held ég hafi fengi besta kaffi sem ég hef smakkað þarna á Hótel Keili og ég þarf einhvers staðar að ná í brauðið sem Ragnar bauð upp á.
Eftir að við kvöddum hjónin með virktum fórum við hringinn í Sandgerði og Garð. Í Sandgerði voru einhvers konar hátíðahöld í gangi; allar götur skreyttar í bak og fyrir á mjög frumlegan hátt. Mismunandi litir réðu ríkjum eftir götum, ein var gul, önnur rauð og svo framvegis. Reykjanesið var mjög fallegt í gærmorgun, skartaði sínu fegursta í haustsólinni. Ég held að fólk ætti að fara þangað oftar og í öðrum tilgangi en að skjótast bara út á flugvöll, þarna er margt að sjá, fagurt fuglalíf og náttúra sem á engan sinn líka.
Svo er fólkið þarna svo dæmalaust næs.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)