1. maí 2008
1.5.2008 | 11:22
Dagskráin á Útvarpi Sögu
Kl. 08:00 verður endurfluttur morgunþáttur Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra þar sem hún ræddi
við Eddu Björgvinsdóttur leikkonu og Jörund Guðmundsson farastjóra á La Gomera eyjunni en þar hafa geisað skógareldar síðustu daga.
Kl.09:00 verður endurflutt viðtal hennar við Egil Helgason sjónvarpsmann úr Silfi Egils en þau ræða helstu fréttir undanfarna daga svo sem viðbrögð stjórnvalda við efnahagsástandinu.
Kl.10:00 -12:00 verður endurfluttur þáttur Sigurðar G. Tómassonar og Guðmundar Ólafssonar hagfræðings og lektors en eins og þeim er einum lagið fara þeir alveg á kostum í umræðunni um stöðu efnahagsmála. Kannski ber Rússland eitthvað aðeins á góma líka.Kl.12 á hádegi eru fréttir frá Fréttastofu
Kl.12:30 Skoðun dagsins 1. maí. Eiríkur Stefánsson fyrrum verkalýðsleiðtogi flytur erindi í tilefni
dagsins
Kl. 13:00-16:00 Markús Þórhallsson og Sverrir Júlíusson bregða á leik með hlustendum og fylgjast með því helsta sem verður um að vera. Síminn verður að sjálfsögðu opinn.
Kl.16:00-18:00 Ásgerður Jóna Flosadóttir fær til sín góða gesti m.a. Hjörleif Guttormsson náttúrfræðing og
fyrrum alþingismann en þau munu spjalla um íslenska náttúru og ferðamál.
Kl.21:00-23:00 Hermundur Rósinkranz talnaspekingur og miðill tekur á móti símtölum frá hlustendum í síma 588 1994 og les í tölurnar þeirra.
Endurflutningur um nóttina til kl.07:00 föstudaginn 2.maí en þá mætir Arnþrúður Karlsdóttir hlustendum í
morgunútvarpinu
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Kröfugöngur víða um heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Talið niður í Eurovision
1.5.2008 | 00:07

Í gær hófst á Útvarpi Sögu niðurtalningin fyrir Eurovision söngvakeppnina í maí. Við Sverrir Júlíusson fengum góða gesti í hljóðver sem fóru hreinlega á kostum.
Helga Möller og Valgeir Guðjónsson voru gestadómarar í þættinum í gær. Þeim leið fremur illa framan af því þeim þótti hvorki lagasmíðar né flutningur þeirra mjög heillandi, svo vægt sé til orða tekið. Það var samt glatt á hjalla og stutt í hláturinn, enda bráðskemmtilegt fólk á ferð. Niðurstaðan varð þó sú að Helga gat ekki séð nema 9 lög áfram en Valgeir var öllu jákvæðari og 12 lög hlutu náð fyrir augum hans. Hann sagði þó að honum yrði ekki skotaskuld úr því að skera listann verulega niður. Enda verða það ekki nema 10 lög sem komast áfram af hvoru undanúrslitakvöldi, þannig að þau eru á réttu róli svona að meðaltali. Niðurstaða þeirra skötuhjúa er þessi:

Helga valdi:
San Marino með lagið Complice
Noreg með lagið Hold on be strong
Írland með lagið Irlande douze points
Andorra með lagið Casanova
Armenía með lagið Quele Quele
Holland með lagið Your heart belongs to me
Rúmenía með lagið On the edge of the world
Rússland með lagið Believe
Grikkland með lagið Secret Combination

Og Valgeir valdi:
San Marino með lagið Complice
Belgía með lagið O Julissi
Slovenia með lagið Vrag naj vzame
Noregur með lagið Hold on be strong
Írland með lagið Irlande douze points
Andorra með lagið Casanova
Armenia með lagið Qele Qele
Holland með lagið Your heart belongs to me
Finnland með lagið Missa miehet ratsastaa
Rúmenía með lagið On the edge of the world
Rússland með lagið Believe
Grikkland með lagið Secret Combination

Helga og Valgeir voru sammála um að gríska lagið væri það besta á fyrra undanúrslitakvöldinu. Við hvetjum hlustendur til að fylgjast með okkur næsta þriðjudag þegar lögin á seinna úrslitakvöldinu lenda undir smásjánni. Þar á meðal íslenzka framlagið This is my life
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)