Færsluflokkur: Lífstíll

Sennilega...

...er best að vera bóndi.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Bankastarfsmenn uggandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn ágætur í dýrtíðinni

Eldri dama gengur inn í Gull og Silfur á Laugavegi og fer að skoða í kring um sig í rólegheitunum.
Hún sér gríðarlega fallegt demantsarmband og gengur að sýningaborðinu til að skoða það nánar. Þegar hún svo beygir sig yfir borðið til að sjá betur, prumpar hún óvart. Hún fer mjög hjá sér og lítur vandræðaleg kringum sig til að athuga hvort nokkur hafi tekið eftir þessu litla slysi hennar og vonar jafnframt að það komi ekki einhver sölumaður akkúrat meðan lyktin svífur um hana. Hún snýr sér varlega við og til að fullkomna martröðina, stendur ekki bara sölumaður beint fyrir aftan hana !?
Svellkaldur sölumaðurinn sýnir fullkomna fagmennsku þegar hann heilsar eldri dömunni og spyr hvort hann getir aðstoðað hana á einhvern hátt?
Mjög vandræðaleg, vonar sú gamla að sölumaðurinn hafi ekki staðið fyrir aftan hana einmitt á þessu viðkvæma augnabliki rétt áður, spyr hún, hvað kostar svo þetta fallega demantsarmband?
Hann svarar: Kæra frú, ef að þú prumpaðir bara yfir því að líta á það, áttu eftir að skíta upp á bak þegar þú heyrir verðið !!

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Anna: Dagurinn ekki búinn enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona er líf mitt um þessar mundir

Sporðdreki: Það er furðulegt hvernig velgengni getur hrist meira upp í manni en það að fá ekki það sem maður þráir. Lífið breytist og þú þarft að breytast líka.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


Lífið verður aldrei eins aftur

KojakEftir að hafa fengið þessi tíðindi. Nú neyðist ég víst til að tilkynna öllum að mér finnst hárvöxtur minn hafa minnkað, meira að segja verulega. Ég lenti svona ykkur að segja í því í röðinni í Bónus um daginn að ég heyrði sagt fyrir aftan mig... "hvað bara Kojak mættur". Samt var ég ekki með sleikjó.

Gaui á neðri hæðinni sagði svo við mig um daginn að ég væri eins og Mini me. Samt var ég ekki í gráum fötum. Þegar manni er líkt við Mini Me og Kojak verður maður að spila með og hegða sér eins og þeir. Ekki satt?

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Hárvöxtur Hauks Holm eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt sumar

Bloggvinir allir, lesarar  og hlustendur, vinir og fjölskylda. Kærar þakkir fyrir ánægjulegan vetur og megi komandi sumar verða ykkur uppfulltaf gæfu, gleði og ánægjulegum stundum.


Huh!

 

Guðbjörg farin, greinilega búin að fá nóg af vinkonum sínum

Fregnir herma að Guðbjörg Jónsdóttir framhaldsskólanemi hafi húðskammað Aðalheiði Pálsdóttur, sem vogaði sér að tala við vinkonu Guðbjargar á skólaballi um daginn.

Eins og fram hefur komið gengur sú saga nú fjöllum hærra að Guðbjörg sé dottin í súkkulaðið, aftur.

Heimildamaður sagði mér að vinkona Guðbjargar, Sigríður Árnadóttir, hafi vakið mikla athygli sem barnapía og það hafi Guðbjörgu ekki líkað.

Þegar svo Heiða kastaði kveðju á Siggu á skólaballinu virtist Guðbjörgu nóg boðið og jós Heiðu svívirðingum og rak hana burt frá vinkonu sinni.

Skapstjórn Guðbjargar var lítið skárri strax næsta kvöld, þegar hún lenti í hávaðarifrildi við Siggu og sakaði hana um að sýna sér ekki næga athygli.

Fregnir herma að Guðbjörg hafi reyndar breytt nafni sínu á Facebook í Gugga Heita, og er hún var í meðferð í fyrra mun hún hafa skrifað Siggu ástarbréf og sagst vilja giftast henni og eignast börn með henni.


mbl.is Lohan missir stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Særandi, illgirnislegt og óviðeigandi

RogerOld 

Ég hafði hugsað mér að nota myndina sem fylgir þessarri færslu með Ljóði dagsins hér að neðan. En þá uppgötvaði ég í hugskoti mínu að hún gæti verið særandi, illgirnisleg og algerlega óviðeigandi. Þannig að ég ákvað að hætta ekki á að verða bannaður hér og birti öllu hugglegri mynd af viðfanginu, leikaranum Roger Moore.

Ég var nefnilega að komast á snoðir um það hér: http://blekpenni.blog.is/blog/blekpenni/ að það styttist óðum í að allar skopmyndir og háðsádeila verða bönnuð (allavega á moggablogginu og þá styttist í að fleiri bregðist við með sama hætti). Ástæðan virðist vera sú að einhver sérfræðingurinn var að uppgötva að slíkar myndir gætu hugsanlega sært eða móðgað einhvern. Nú hljóta ljóskubrandararnir, brandararnir um klaufsku karlmanna, hafnfirðinga, Árna Johnsen, pólverja, finna, ameríkana, lækna, bankamenn, drauga, dýr, fína fólkið, forngripi, íþróttir, lögfræðinga, hótel, jólin, leikara, foreldra, sálfræðinga, lögguna, Guð og Jesú og síðast en ekki síst múslíma (þorði ekki að segja þetta mjög hátt) að heyra sögunni til.

Mikið rosalega verður þetta tómlegur heimur sem við lifum í eftir það. En öllu skal fórnað á altari pólitískrar rétthugsunar, út með allt sem gæti hugsanlega valdið einhverjum tilfinningaviðbrögðum hjá okkur, hvort sem það er gleði, sorg, hatur eða ást.

Það má vissulega glotta að þessari mynd en hún er engu að síður meiðandi. Eða hvað?

 


Orka ástarinnar - بن لادن

...væri ekki snjallt að Zaina al Sabah bin Laden sem áður hét nú bara Jane, sem virðist alveg hafa munninn fyrir neðan nefið stökkvi á tengdapabba og fái hann til að skipta um starf?  Núverandi starf hans er til dæmis ekki hentugt til að taka á móti barnabörnunum. Kannski er bara búið að finna lausnina á hryðjuverkaógninni....


mbl.is Sonur bin Ladens fær ekki að koma til Bretlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi...

...léttist ég. Þegar kílóin mín verða endurskilgreind.
mbl.is Kílóið endurskilgreint
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðlífskreppa?

Ísl-enskasta orð sem ég hef séð lengi. En mín tillaga er að Goggi haldi sig við sín gráu hár. Það er mikið flottara.
mbl.is Litar Clooney hárið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband