Samræmdu prófin eru stuð
29.4.2008 | 10:31
Ég man þann vetur sem ég tók samræmdu prófin eins og það hefði gerst í gær - eða kannski í fyrradag. Þetta var veturinn 1979 til 1980. Þann vetur var öllum nemendum úr næstefstu bekkjum allra grunnskóla í Breiðholtinu raðað í einn skóla, Hólabrekkuskóla. Úr urðu tólf mjög fjölmennir bekkir sem áttu það örugglega til að vera ekki þeir allra þægustu í skólasögu Íslands.
Umsjónarkennarinn minn var mjög strangur kennari, stór- og mikilmenni, Sverrir Diego sem lést fyrir nokkrum árum. Ég man alltaf þegar verið var að afhenda einkunnirnar úr samræmdu prófunum var stressið talsvert mikið. Sverrir kallaði hvern nemanda upp að skrifborði sínu og lét nokkur gullkorn, eins og honum einum voru lagin, falla við hvern og einn. Ég bar talsverða virðingu fyrir Sverri en stóð jafnframt nokkur stuggur af honum. Hann kenndi mér ensku sem ég var og er blessunarlega nokkuð góður í. Þegar kom að mér að stíga upp að borði kennarans, með talsverðan beyg í brjósti, horfði hann lengi (heila eilífð) í augun á mér ... og sagði loks: Jæja Markús, þú ert einn fárra í þessum bekk sem náði því að fá A.
Ég get ekki lýst með orðum léttinum yfir þessarri niðurstöðu. Ég vil óska öllum þeim sem eru að taka samræmdu prófin þessa dagana góðs gengis í þeim, og auðvitað sérstaklega henni Kristínu Aldísi minni!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Samræmdu prófin hafin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ljóð dagsins
29.4.2008 | 08:55
El Condor Pasa |
I'd rather be a sparrow than a snail. Away, I'd rather sail away I'd rather be a forest than a street. I'd rather feel the earth beneath my feet, Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
|
![]() |
Þungir dómar í Lhasa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Staðið við gluggann...
28.4.2008 | 18:19
...þegar þruma brast á úr heiðskíru lofti. Sumarið breyttist í vetur eitt augnablik, en það gerði ekkert til því maðurinn er aldrei alveg einn. Aldrei alveg.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Styttist í 100.000
28.4.2008 | 13:44
Þó ég sé nú ekki meðal þeirra allra vinsælustu styttist í að hundraðþúsundasti gesturinn kíki í kaffi. Nú sýnir teljarinn 86096 .. þannig að ef ég verð duglegur að blogga og þið dugleg að kíkja við gæti 100.000 gesturinn verið hér í byrjun júní.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ljóð dagsins
28.4.2008 | 11:41
Tár í tómið |
Við áttum drauma um ást og trú Og öll mín tár til einskis þau í tómið renna, Þú grætur oft en ég get svo fátt Þeir hirða þig stundum og hringja í mig Og öll mín tár . Á sjúkrahús fórst og er send varst heim Bárur þér fleygja um bölsins haf Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins. |
![]() |
Engin kennsla á unglingastigi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Til hamingju með daginn Heiðdís mín Harpa
28.4.2008 | 11:23
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mér finnst...
28.4.2008 | 11:11
...þetta vera ein af þeim fréttum sem óþarfi er að hægt sé að blogga um.
Drottinn blessi gömlu konuna sem lést, og hjálpi hinum við að ná bata.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Lést af völdum brunasára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fylgst með göngunni á Sögu
27.4.2008 | 14:49
Sverrir Júlíusson er á vaktinni á Útvarpi Sögu og fylgist með því sem fram fer hjá Sturlu á göngu hans með skiltið.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Mótmælaganga Sturlu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fréttir af John Cleese
27.4.2008 | 13:04
Margir muna eftir gamanleikaranum John Cleese sem frægastur er fyrir að leika á móti Randver Þorlákssyni í Kaupþings auglýsingum. Einhverjir glöggir áhorfendur muna líka eftir honum sem hluta af Monty Python hópnum, sem fúllynda hótelstjóranum Basil Fawlty og lögfræðingnum Archie Leach úr A fish called Wanda.
Hann er fæddur John Marwood Cleese í október 1939, sem þýðir að hann er alveg að verða sjötugur. Upprunalegt ættarnafnið var Cheese en Reginald pabbi Johns breytti því árið 1915.
John Cleese hefur haft áhrif á það sem okkur finnst fyndið í uppundir 40 ár, en það er ekki til umfjöllunar hér. Heldur það að hann er að fara að skilja við konuna sína, hana Alice Faye Eichelberger sem hann kvæntist árið 1992. Parið tilkynnti um skilnaðinn í janúar, og nú er komið að því að ákveða hvernig fjármálunum verður háttað. Skilnaðurinn virðist ekki jafn vinalegur og John hélt fram í fyrstu því það stefnir í blóðuga baráttu.
Eiginkonan bjó með þremur börnum sínum í blokkaríbúð þegar hún giftist Cleese árið 1992. Hún ætlar sér greinilega ekki í þann lífsstíl aftur. Eichelberger segist ekki geta dregið fram lífið á minna en 71 þúsund pundum, eða tíu milljónum króna, á mánuði, og þær á Cleese að skaffa. Inni í þeirri tölu eru tvö þúsund pund á mánuði í föt, fimm þúsund í gjafir, veislur og ferðalög, og þúsund í veitingastaði. Einnig vill hún fá helming allra tekna hans frá því þau giftust og helming húseigna hans. Nú er bara beðið eftir hvað John Cleese er tilbúinn að gera, en það er auðvitað eðlilegt að geta ekki dregið fram lífið af minna en 10 milljónum á mánuði, það sér hver maður.
En það eru ekki tóm leiðindi í lífi Johns því yfirvöld í bænum Pcim í Póllandi hafa boðið honum að dæma í keppni í bjánalegu göngulagi sem verður haldin honum til heiðurs.
Cleese hefur öðlast töluverða frægð í Póllandi vegna bankaauglýsinga sem hann leikur í þar. Í auglýsingunni reynir hann að sannfæra bankastarfsmann um að opna fyrir sig reikning, með þeim orðum að þó hann sé ekki pólskur eigi hann frænku frá Pcim.
Bæjarstjórinn í Pcim sárnaði í fyrstu að maður sem hefði ekki mælt eitt alvarlegt orð um ævina skyldi nota nafn bæjarins í gríni. Hann fyrirgaf Cleese þó eftir að auglýsingastofa benti honum á að þetta væri fyrirtaks tækifæri til að auglýsa bæinn. (visir.is)
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Svona er líf mitt um þessar mundir
27.4.2008 | 12:40
Sporðdreki: Það er furðulegt hvernig velgengni getur hrist meira upp í manni en það að fá ekki það sem maður þráir. Lífið breytist og þú þarft að breytast líka.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)