Ekki við félagarnir
19.9.2008 | 19:02
Við gömlu skólafélagarnir erum heillandi, karlmannlegir og velvaxnir. Eins og sést á þessarri mynd. Nú erum við búnir að þekkjast í 30 ár og höfum aldrei litið betur út. Það er helst Snorri sem er aðeins farinn að láta á sjá, en hann er líka í mjög krefjandi starfi. En við erum æðislegir!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Karlar ofmeta persónutöfra sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:12 | Facebook
Athugasemdir
Verðum við þá ekki að færa okkur yfir í það að metast um hver er bestur til undaneldis.
Það sem er kannað í henni veröld, svei mér þá
Eiríkur Harðarson, 19.9.2008 kl. 21:55
Markús, ert þetta ekki þú þarna í brúnu peysunni? Ég held að þú hafir gleymt að setja upp í þig tennurnar kallinn minn
Þessi 65 ára sem var að gera hosur sínar grænar (hann var samt í hvítum strigaskóm) fyrir mér er nú pínu tilkippilegri en þið vinirnir, en bara pínu mundu það
Sporðdrekinn, 20.9.2008 kl. 01:35
Eiríkur, það þarf að rannsaka allt! Bókstaflega, eitthvað verður fólk að hafa fyrir stafni. Sporðdreki, jú þetta er einmitt ég. Í brúnu töffarapeysunni minni. Tennur hvað??
Það er löngu búið að finna upp sogrörið. Sextíuogfimm ára töffari, já. Gaztu staðizt hann?
Markús frá Djúpalæk, 20.9.2008 kl. 07:42
Já þú meinar, þú svolgrar bara hráum eggjum og prótein hristing í þig gegnum rörið, sniðugt
Það var varla, hann var með þessa fínu magavöðva
Annars getur þú lesið um þennan töffara á blogginu mínu, þú getur kannski lært einhverja tækni frá honum 
Sporðdrekinn, 20.9.2008 kl. 17:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.