Magnaðar fyrirsagnir
16.9.2008 | 11:28
Úr slúðurdálki ónefnds vefmiðils. Og þetta er bara brot af þeim snilldarfyrirsögnum sem sést hafa í september:
Háskælandi fegurðardrottning á bikiní!
Nös Kate Moss vekur athygli!
Ómáluð Celine Dion veldur uppnámi!
Jennifer Hudson sagði já - myndir!
Óförðuð Eva Longoria veldur fjölmiðlafári!
Mills sögð lygasjúk!
Heather Mills er lygari og tík, segir upplýsingafulltrúi!
Vandræðaleg aðþrengd Eva Longoria!
Upphandleggir Madonnu vekja athygli!
Ronaldo kaupir nýjan leikfélaga - myndir!
Gagnrýnd fyrir að vera grindhoruð - myndir!
Hryggur David tekst á við kynlílfsfíknina!
Krumpuð kné Elle McPherson vekja athygli!
Pamela nærist á ruslfæði á hlaupum!
Jón Gnarr er ekki Hannes Hólmsteinn!
Britney umvafin lífvörðum bláedrú!
Sienna Miller áreitt hvert sem hún fer!
Spurt er um blöðrubólgu!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:32 | Facebook
Athugasemdir
... að ógleymdum þessum ódauðlegu fyrirsögnum:
Vandræðaleg geirvarta Mischu Barton - myndir
Afskræmd ástfangin kattarkona - myndir
Nýklippt Kate Moss fýlupúki - myndir
Skítug eyru Victoriu Beckham vekja athygli
Svitakirtlar Jennifer Lopez áhyggjuefni
Úlla (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 23:13
Og ein sú merkilegasta: Edrú Kirsten Dunst í sólbaði!
Markús frá Djúpalæk, 20.9.2008 kl. 07:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.