Tryggingafélögin vilja alltaf hafa belti og axlabönd
17.7.2008 | 10:59
Ég minnist ţess ţegar ég ungur mađur tryggđi bílinn minn hjá tryggingafélaginu Ábyrgđ, tryggingafélagi bindindismanna. Ţađ félag er ekki til lengur, hvort sem um er ađ kenna fćkkun bindindismanna eđa ţví ađ ađrir buđu betur.
Svo brá viđ eitt sumariđ ađ ég fékk lítiđ lettersbréf frá ţessu fína tryggingafélagi sem ég hafđi tryggt hjá tjónlaust í einhver 3 ár. Sem nota bene er óratími fyrir 22 ára gamlan mann. Í bréfinu tilkynnti tryggingafélagiđ mér ađ ţar sem ég vćri bráđungt kvikindi, ekki orđinn 25 vetra neyddist ţađ til ađ hćkka hjá mér iđgjöldin um 25 af hundrađi. Ađeins. Skođuđu ekkert ökuferilinn og enn síđur hvernig bíl ég ćtti. Enda svona ofurbílar eins og nú eru til varla fáanlegir, einn og einn ungur sveinn átti japanskan GTi bíl, en flestir óku nú um á kraftminni farartćkjum.
Mér fannst ţetta mjög skrýtin ráđstöfun, talađi viđ tryggingafélagiđ sem var einart í afstöđu sinni um ađ hćkka iđgjöldin hjá mér og öđrum ungmennum um helling. Ég sagđi ţeim upp í snatri, fór yfir til VÍS ţar sem ég borgađi minna en hjá bindindismönnunum.
Örskömmu síđar gekk Ábyrgđ í fjöll, rann saman viđ Sjóvá og hefur ekki til ţess spurst síđan.
Bloggfćrslan er alfariđ á ábyrgđ skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skođanir eđa afstöđu mbl.is, og Morgunblađsins.
Tryggir ekki kraftmikla létta bíla | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Ţetta gekk bara ekki lengur fyrst eini bindindismađurinn var farinn annađ
Sigţrúđur Harđardóttir, 18.7.2008 kl. 10:16
Hrćđileg örlög svona félags
Markús frá Djúpalćk, 18.7.2008 kl. 11:31
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.