Tístir alla daga
25.6.2008 | 17:55
Þeir eru margir hamstrarnir sem öfunda Stebba Hamstur. Ekki aðeins er kappinn 20 cm á hæð heldur vinnur hann sér ekkert smáræði inn. Fyrir það eitt að halda á poka með kylfum í, af og til fær Williams 14,5 kíló af hnetum á ári.
Stebbi er auðvitað kylfuberi hjá Tígra Golfkappa og hefur verið það í níu mánuði. Það starf er ekki amalegt þegar vinnuveitandinn er alveg svakalega flinkur í golfi.
Stebbi hefur fengið hátt í 140 kíló af hnetum og slatta af korni á þeim tíma og þótt hann sé ekki í þeim skala að láta Alwin & the Chipmunks syngja í afmælinu sínu hefur hann það samt fínt. Það er alger hending er ef Tígri keppir oftar en tvisvar í viku þessa dagana.
Þess utan er Stebbi Hamstur nú kominn í frí til áramóta, og ætlar að æfa sig í golfi, svo hann verði jafnflinkur og Tígri.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Hlær alla leið í bankann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Eiríkur Harðarson, 25.6.2008 kl. 18:01
Frekar - enda ekki nógu miklir hamstrar....
Markús frá Djúpalæk, 25.6.2008 kl. 18:29
Halla Rut , 25.6.2008 kl. 18:38
Guði sé lof!
Ég las fyrirsögnina hjá þér og hélt að þú værir farinn að blogga um millifótatak femínasnanna!
Sjúkket og sjokkrílív!!
Signingar og allt gumsið! 
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.6.2008 kl. 19:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.