Huh!
23.4.2008 | 12:48
Guðbjörg farin, greinilega búin að fá nóg af vinkonum sínum
Fregnir herma að Guðbjörg Jónsdóttir framhaldsskólanemi hafi húðskammað Aðalheiði Pálsdóttur, sem vogaði sér að tala við vinkonu Guðbjargar á skólaballi um daginn.
Eins og fram hefur komið gengur sú saga nú fjöllum hærra að Guðbjörg sé dottin í súkkulaðið, aftur.
Heimildamaður sagði mér að vinkona Guðbjargar, Sigríður Árnadóttir, hafi vakið mikla athygli sem barnapía og það hafi Guðbjörgu ekki líkað.
Þegar svo Heiða kastaði kveðju á Siggu á skólaballinu virtist Guðbjörgu nóg boðið og jós Heiðu svívirðingum og rak hana burt frá vinkonu sinni.
Skapstjórn Guðbjargar var lítið skárri strax næsta kvöld, þegar hún lenti í hávaðarifrildi við Siggu og sakaði hana um að sýna sér ekki næga athygli.
Fregnir herma að Guðbjörg hafi reyndar breytt nafni sínu á Facebook í Gugga Heita, og er hún var í meðferð í fyrra mun hún hafa skrifað Siggu ástarbréf og sagst vilja giftast henni og eignast börn með henni.
Lohan missir stjórn á skapi sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
hehehehehe þú ert frábær
Hrönn Sigurðardóttir, 23.4.2008 kl. 12:59
alltaf jafn fyndinn þessi elska...ég hló eins og hýena þegar ég las þetta...gullkornin þín eru nauðsynleg bætiefni í dagsins önn
kv,Linda Agnars
Linda Agnars (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 14:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.