Bylgja Hafþórsdóttir og myglusveppurinn
31.3.2008 | 10:40
Í Rödd Alþýðunnar í morgun heyrðum við í henni Bylgju Hafþórsdóttur sem sagði sögu sína af vágestinum sem eyddi húsinu hennar, myglusveppinum. Hún var ótrúlega æðrulaus þrátt fyrir að enginn virtist geta eða vilja hlaupa undir bagga, hvort sem um var að ræða tryggingafélag þeirra, viðlagasjóð, bjargráðasjóð, fyrri eigandi. Allstaðar hafa mætt þeim lokaðar dyr. Nú er komið að okkur, íslendingar hafa hlaupið undir bagga með fólki sem hefur misst allt sitt áður, og því miður er það þannig, eins og hún Sylgja Dögg frá Hús og heilsu sagði, þetta getur gerst hvar sem er. Myglusveppurinn laumast inn til okkar án þess að við verðum vör við það meira að segja, unir sér best í raka og er ekki svo auðveldur viðureignar þegar hann hefur skotið rótum.
Ég birti hér aftur reikningsnúmerið vegna söfnunarinnar fyrir þau:
Reikningsnúmer 1102-15-9217, kt. 241064-5149.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.