Ég heiti Markús og ég er Eurovision nörd

Já, ég viđurkenni ţađ fúslega. Ég er yfirlýstur Eurovision nörd. Af einhverri dularfullri ástćđu fíla ég ţessa ofur hallćrislegu keppni alveg í tćtlur. Hér í gamla daga (ćm óld) var gaman ađ fylgjast međ ţeim mikla metnađi sem oft lá ađ baki framlaga ţjóđanna en ég sakna ţó svona yfirmáta hallćrislegra keppnismyndbanda sem voru eins og kynningarmyndband frá ferđamálaráđi viđkomandi lands - nú um stundir er bara bođiđ upp á uppstoppađa kalkúna á sviđi eđa eista (ţjóđina en ekki líffćriđ) í sjórćningjabúningum og alvaran og keppnisskapiđ hefur ađ eins vikiđ. Eđa hvađ?

Frá upphafi var mikiđ lagt í keppnina af hálfu ţeirra ţjóđa sem tóku ţátt. Hljómsveitir sem ćtluđu ađ meika ţađ reyndu hvađ ţćr gátu ađ taka ţátt  í Eurovision. Meira ađ segja fólk eins og Cliff Richard, Olivia Newton-John, Lulu og Julio Iglesias sýndu hvađ í ţeim bjó međ ţátttöku í Eurovision. Abba gerđi tvćr atrennur ađ keppninni, sem var sannarlega stökkpallur fyrir tónlistarmenn í tónlistarheiminn. Svo breyttist eiginlega allt eins og hendi vćri veifađ ţegar MTV varđ til, snemma á níunda áratugnum. Ţá varđ til grundvöllur fyrir flytjendur ađ koma tónlist sinni á framfćri međ nýjum og öflugum hćtti. Um tíma voru menn  meira ađ segja ađ velta ţví fyrir sér í alvöru ađ leggja keppnina af. Áriđ 1997 breyttist svo allt aftur. Ţađ má segja ađ símakosningin, ţeas bein ţátttaka áhorfenda heima í stofu hafi blásiđ nýju lífi í Eurovision. Til gamans má segja frá ţví ađ Páll Óskar fékk enga náđ fyrir augum hinna hefđbundnu dómnefnda en halađi inn haug af stigum í símakosningunni.

Keppnin er alltaf ađ ţróast, eins og núna eru tvćr undankeppnir ţví ţađ eru bara 5 ţjóđir öruggar á úrslitakvöldinu, Bretland, Frakkland, Ţýskaland og Spánn ásamt sigurvegara síđasta árs Serbíu. Tíu ţjóđir komast áfram úr hvorri undankeppni og ţeim hefur veriđ stillt upp ţannig ađ minni hćtta verđi á nágranna og vinaţjóđakosningu en veriđ hefur. Ísland keppir á seinna undanúrslitakvöldinu 22. maí og mćtir ţar m.a. Danmörku, Hvíta-Rússlandi, Tyrklandi og Albaníu. Aserbadjsan og San Marino eru ađ taka ţátt í fyrsta skipti í ár og keppa á fyrra kvöldinu. Viđ skulum vona ađ ţetta nýja fyrirkomulag blási nýju lífi í keppnina, ekki veitir af, eftir allt umtaliđ um svindl og svínarí í atkvćđagreiđslum.

Verst er ađ hinn bráđskemmtilegi norrćni spekingaţáttur verđur sennilega ekki á dagskrá ţetta voriđ. Ţar var alltaf hćgt ađ ganga ađ áhugaverđur nördapćlingum vísum. En vonandi snýst mönnum hugur og hćtta viđ ađ hćtta viđ ađ hćtta....


mbl.is Evróvisjónáhugi sem aldrei fyrr
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guđrún Eiríksdóttir

Spennó!

Helga Guđrún Eiríksdóttir, 14.3.2008 kl. 00:53

2 Smámynd: Hrönn Sigurđardóttir

Norrćni spekingaspjallsţátturinn búinn ađ vera í uppáhaldi hjá mér í mörg ár!

En - manstu eftir Kontrapunkti....?

Talandi um ađ vera nörd....

Hrönn Sigurđardóttir, 14.3.2008 kl. 08:47

3 Smámynd: Markús frá Djúpalćk

 Já - ég man eftir kontrapunkti og Popppunkti. En mér finnst nú grautfúlt ef ţessi spekingaspjallţáttur verđur blásinn af ...

Markús frá Djúpalćk, 14.3.2008 kl. 10:20

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband