Flensan
11.3.2008 | 14:59
Einn ágætur vegna þess að margir hafa það frekar skítt þessa dagana
Lyfjafræðingur var dag einn með elsta son sinn í versluninni, þegar síminn hringdi og hann þurfti nauðsynlega að bregða sér frá. Hann bað því strákinn að gæta verslunarinnar fyrir sig en bannaði honum að afgreiða lyfseðilskyld lyf.
Ekki málið sagði stráksi fullur sjálftrausts og ætlaði sko að sýna þeim gamla hvað hann væri flottur dealer.
Eftir skamma stund kemur lyfsalinn aftur og spyr strákinn hvernig hafi gengið.
Þetta var ekkert mál, það kom bara einn kall með alveg geðveikan hósta sagði stráksi
Nú! og hvað léstu hann fá? spurði lyfsalinn.
Ég lét hann hafa Laxerolíu sagði stráksi hróðugur.
Ertu alveg snarvitlaus drengur, hvernig heldur þú að laxerolía geti læknað HÓSTA!? sagði lyfsalinn titrandi röddu.
Nú, þú getur séð það sjálfur, hann stendur þarna úti og styður sig við ljósastaurinn og þorir ekki fyrir sitt litla líf að hósta.
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 15:03 | Facebook
Athugasemdir
Hahahahaha
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 12.3.2008 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.