Uppáhaldslag Heiðdísar Hörpu

Hún er nýorðin sjö ára og kyrjar þetta daginn út og inn. Hún fer merkilega rétt með textann meira að segja.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


Er að lesa svakalega bók

Mikael Torfason færði mér eintak af fyrstu bókinni sinni Falskur Fugl, sem hann endurútgaf nýverið. Hún kom út árið 1997 og er frásögn hins 16 ára Arnaldar sem lifir heldur skrautlegu lífi, kannski fullmikill töffari miðað við aldur en hann hefur ekki átt neitt sérstaklega góða ævi strákurinn. Hann er á kafi í eiturlyfjum og í sárum eftir sviplegt andlát bróður hans. Bókin er gríðarvel skrifuð og er þeirrar náttúru að ég á erfitt með að leggja hana frá mér, hún er gróf, ofbeldisfull og grimm, en undirniðri kraumar harmurinn og sú vissa að töffarinn Arnaldur er raunverulega bara barn sem vill ekkert vera í þeirri stöðu sem hann er kominn í. Það kvað við nýjan tón þegar bókin kom út fyrir rúmlega áratug, en ég er rosalega feginn að sjá ekki þennan heim sem Arnaldur lifir í, í dóttur minni 16 ára og hennar vinum. Ég er rétt rúmlega hálfnaður með bókina og hlakka til að halda áfram lestrinum í kvöld.

Ég sá í fréttum í vor að til stendur að gera kvikmynd eftir bókinni og þá stóð til að vinna við hana hæfist nú í haust. Jón Atli Jónasson leikskáld og fyrrverandi útvarpsmaður, hefur skrifað kvikmyndahandrit sem byggir á bókinni og mun Þór Ómar Jónsson leikstýra myndinni.

Mikael mun vera bjartsýnn á að myndin eigi eftir að koma vel út. „Ég reikna með að hún verði svona einhverskonar íslensk útgáfa af Trainspotting mætir Fight Club, afþví hann er náttúrulega mikill töffari hann Arnaldur, aðalpersónan í bókinni.“ Að öðru leyti segist Mikael ætla að halda sig á hliðarlínunni við gerð kvikmyndarinnar og gefa Jóni Atla og Þór algjört frelsi með hana.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


Annar hvor hlýtur að víkja

playingchicken

 

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Allt fór á versta veg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. júlí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband