Merkileg aðferð
1.6.2008 | 21:38
Þessi úrslit sýna kannski svo ekki verður um villst hve liðin í Landsbankadeildinni eru jöfn að styrkleika.
Það var samt annað sem mér datt í hug allt í einu. Það er aðferðin sem liðin nota þegar þau fara af stað að leita sér að útlendingum í sínar raðir. Þeir sem fara á stúfana velja auðvitað bara menn sem bera nöfn sem þeir kannast við. Michael Jackson og Prince leika í deildinni núna, og hefur Dean Martin ekki líka verið atkvæðamikill í tuðrusparki á Íslandi? Kunnugleg nöfn hljóta að vera ávísun á velgengni, ekki satt? Ég myndi persónulega nota þessa aðferð sjálfur.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Þróttur lagði topplið Keflvíkinga, 3:2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tapsárir svíar...
1.6.2008 | 20:58
...þetta kvart hljómar sem viðbrögð hins tapsára minnipokaliðs í mín eyru. Ætli sé orðin til íslendingagrýla í Svíþjóð, náskyld hinni gömlu svíagrýlu sem lengi lifði góðu lífi á Íslandi?
Hvað sem þessu öllu líður var þetta frábær leikur og stórkostlegt að Ísland sé að senda handboltalið á olympíuleikana!
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Svíar kvarta en kæra ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)