Ljóð geta verið góð þó þau séu vond

Bloggfærslan er alfarið

á ábyrgð skrifanda

en endurspeglar ekki á neinn hátt

skoðanir eða afstöðu mbl.is

og Morgunblaðsins.


mbl.is Verstu ljóð í heimi á uppboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur til Noregs? Örlítil hræódýr söguskýring

ralph-viking

Einu sinni tók hópur af heimskustu sonum Noregs sig til og ákvað að yfirgefa landið sem síðar átti eftir að verða eitt auðugasta ríki veraldar.  Þeir skást gefnu ákváðu að verða eftir í Færeyjum, og komu sér ágætlega fyrir það. Hópur af örlítið heimskari Norðmönnum sigldi áfram og tók land þar sem tvö prik rak að ströndu og hokraði þar í kulda og vosbúð í ellefu aldir, alltaf nær dauða en lífi úr skyrbjúg og beinkröm. Örfáum vesalingum leist nú ekki betur en svo á þetta land að þeir ákváðu að sigla áfram í vestur, þar sem þeir fundu hið gjöfula Vínland. Land þar sem smjörið draup af hverju strái og ávextir uxu á hverju tré. Þeir voru þó ekki betur gefnir en svo að þeim tókst öllum að drepast þar hver um annan þveran, hvernig sem þeir nú fóru að því. Samt eru þeir sem urðu eftir í miðlandinu enn að monta sig af vesturförunum.

Nú stendur til, eftir aldalangan aðskilnað að sameinast Noregi á ný og tengjast föðurlandinu forna tryggðarböndum.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Fyrsti þáttur í lengra ferli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband