Ein..

..en þó aldrei alveg. Enda var hann alltaf þarna. Þó hann væri víðsfjarri. Hvernig og hvers vegna þessu var svona farið vissi enginn nema hún. Og ótrúlegt en satt, þá kunni hún þessu vel, mikið betur en mörgu öðru sem hún hafði upplifað. Samt hafði lífið verið fullt af ævintýrum.

Og fiðrildum.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


Ljóð dagsins

Hevenu Shalom aleichem
Ísraelskt/hebreskt þjóðlag.


Hevenu shalom aleichem
Hevenu shalom aleichem
Hevenu shalom aleichem
Hevenu shalom, shalom
shalom aleichem.


Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Átök færast til Trípolí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru til misútsmognir þjófar

makkintossÞessi saga gerist á þeim fátæklegu tímum þegar laugardagar voru ekki nammidagar og gos var ekki á borðum nema á stórhátíðum. Þannig var því líka farið með Makkintoss konfektið góða. Fjölskylda ein hafði fjárfest í heljarstórri dós af þessháttar gúmmilaði en vegna þess að sælgæti átti eingöngu að hafa á borðum um Jól var ákveðið að koma dósinni í tryggilega geymslu í skáp einum þar sem engin hætta var talin á að fjölskyldumeðlimir myndu ásælast innihaldið. Í þá daga. og kannski enn, var dósinni pakkað í plast þannig að ekki þótti líklegt að nokkur reyndi að ná sér í mola, því ummerki sæjust umsvifalaust.

Nokkrum dögum fyrir jól stóð húsfreyja í bakstri og fann hvergi dósaopnarann sinn, hann var svo gersamlega horfinn að hún neyddist til að kaupa nýjan til að geta opnað þær dósir sem hún þurfti við baksturinn. Nú, jólabaksturinn tókst ljómandi vel, svo og jólaundirbúningur allur. Á aðfangadagskvöld átti síðan að gæða sér á eplum og appelsínum og að sjálfsögðu Makkintossinu úr dósinni góðu í skápnum.  Þegar hún var sótt, reyndist hún öllu léttari en þegar hún var keypt og um leið og henni var kippt út úr skápnum datt úr henni botninn og.... dósaupptakarinn með.

Yngsti fjölskyldumeðlimurinn, mikill sælgætisgrís, hafði á haustdögum fundið út þessa útsmognu aðferð við að ná sér í mola og mola úr dósinni... en þeir urðu bara svo óskaplega margir að dósin var sama og tóm á að fangadagskvöld.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Miklu fé stolið úr hraðbönkum á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband