Łódź

Hvar er sú borg?

Þess utan er ábyggilega mjög hættulegt að heimsækja Nottingham.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Flugvél Ryanair fór út af flugbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gætum við...

..fengið haldbærar skýringar á þessum eilífu hækkunum? Tíðindi af góðri afkomu breskra olíufélaga voru svolítið sláandi í morgun, í ljósi þess hve hátt slík fyrirtæki um allan heim hafa grátið yfir erfiðum dögum. Er nú ekki kominn tími á aðgerðir, alvöru aðgerðir af hálfu íslenzkra neytenda?

Bresku olíufélögin BP og Shell skiluðu samanlagt vel yfir þúsund milljarða króna hagnaði á fyrsta ársfjórðungi ársins. Hagnaður Shell nam rúmlega 7,7 milljörðum dollara en hagnaður BP var aðeins minni eða 6,6 milljarðar dollara. Aukningin hjá Shell nam 12% miðað við sama tímabil í fyrra en aukning hjá BP var heil 50%. Í breskum fjölmiðlum í morgun er leitt líkum að því að þessi risahagnaður olíufélaganna tveggja muni koma verulega við kaunin á almenningi í Bretlandi sem þurft hefur að horfa upp á stöðugt hækkandi bensín og díselolíuverð á undanförnum mánuðum.

Verð á hráolíu hefur lækkað á mörkuðum í morgun en tveggja daga verkfall í skoskri olíuhreinsistöð lauk í morgun. Olíuverð komst í 119,93 tunnan markaði í New York í gær og var þá 80% hærra en fyrir réttu ári. Í morgun hefur verðið lækkað og var 117,82 dalir. Brent Norðursjávarolía lækkaði um 1,15 dali tunnan í morgun og var 115, 59 dalir. Hæst komst verðið í 117,56 dali á föstudag.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

 


mbl.is Allir hækka bensínið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðan bata...

Kris 

...gamli vinur.

 

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Kunnur breskur leikari slasaðist í bílslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samræmdu prófin eru stuð

Ég man þann vetur sem ég tók samræmdu prófin eins og það hefði gerst í gær - eða kannski í fyrradag. Þetta var veturinn 1979 til 1980. Þann vetur var öllum nemendum úr næstefstu bekkjum allra grunnskóla í Breiðholtinu raðað í einn skóla, Hólabrekkuskóla. Úr urðu tólf mjög fjölmennir bekkir sem áttu það örugglega til að vera ekki þeir allra þægustu í skólasögu Íslands.

Umsjónarkennarinn minn var mjög strangur kennari, stór- og mikilmenni, Sverrir Diego sem lést fyrir nokkrum árum. Ég man alltaf þegar verið var að afhenda einkunnirnar úr samræmdu prófunum var stressið talsvert mikið. Sverrir kallaði hvern nemanda upp að skrifborði sínu og lét nokkur gullkorn, eins og honum einum voru lagin, falla við hvern og einn. Ég bar talsverða virðingu fyrir Sverri en stóð jafnframt nokkur stuggur af honum. Hann kenndi mér ensku sem ég var og er blessunarlega nokkuð góður í. Þegar kom að mér að stíga upp að borði kennarans, með talsverðan beyg í brjósti, horfði hann lengi (heila eilífð) í augun á mér ... og sagði loks: Jæja Markús, þú ert einn fárra í þessum bekk sem náði því að fá A.

Ég get ekki lýst með orðum léttinum yfir þessarri niðurstöðu. Ég vil óska öllum þeim sem eru að taka samræmdu prófin þessa dagana góðs gengis í þeim, og auðvitað sérstaklega henni Kristínu Aldísi minni!

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Samræmdu prófin hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóð dagsins

condor22 

El Condor Pasa
Lag: Jorge Milchberg, Daniel Robles úr þjóðlagi frá Perú. Ljóð: Paul Simon. 

 

I'd rather be a sparrow than a snail.
Yes I would.
If I could,
I surely would.
I'd rather be a hammer than a nail.
Yes I would.
If I only could,
I surely would.

Away, I'd rather sail away
Like a swan that's here and gone
A man gets tied up to the ground
He gives the world
Its saddest sound,
Its saddest sound.

I'd rather be a forest than a street.
Yes I would.
If I could,
I surely would.

I'd rather feel the earth beneath my feet,
Yes I would.
If I only could,
I surely would.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


 


mbl.is Þungir dómar í Lhasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband