Kæruleysi
15.10.2008 | 13:24
Vinkonur einar fóru á bar og drukku sig fullar eins og kvenna er siður þegar þær eru ekki með karlana með sér. Þegar þær voru að labba heim þurftu þær báðar nauðsynlega að pissa. Þær voru hjá kirkjugarðinum og ákvaðu að pissa bakvið einhvern legstein þar.
Sú sem fyrst pissaði þurrkaði sér á nærbuxunum sínum og henti þeim eitthvað út í loftið að því loknu. Vinkona hennar var aftur á móti í rokdýrum nærum sem hún vildi ekki tapa, en var svo heppin að hún gat teigt sig í borða af kransi á næsta leiði og þurrkað sér á honum. Vinkonurnar gátu nú haldið ferð sinni áfram og komust heim heilar á húfi.
Daginn eftir hringdi eiginmaður annarrar þeirra í hinn og sagði;
Þessum kvennakvöldum þarf að fara að ljúka. Konan mín kom nærbuxnalaus heim í nótt.
Það er nú ekkert, sagði hinn, Mín kom heim með kort á milli rasskinnanna og á því stóð, Frá okkur öllum á Slökkvistöðinni, við munum aldrei gleyma þér.
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Spaugilegt | Breytt 19.10.2008 kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Áhrif bankakreppunnar leynast víða
15.10.2008 | 09:38
Gamla fólkið á elliheimili úti á landi var orðið afar þrúgað og meðtekið af efnahagsbölsýnissíbyljunni í fjölmiðlunum.
Forstöðukonan hafði miklar áhyggjur af þessu.
Í morgun var leikfimi á heimilinu. Forstöðukonan bað íþróttafræðinginn að vera nú heldur á léttu nótunum og fyrir alla muni ekki minnast á efnahagsmál eða þrengingar.
Þetta væri alveg að fara með gamla fólkið.
Íþróttafræðingurinn sagði það ekki nema sjálfsagt.
Svona hóf hann tímann:
"Kæru vinir! Í dag byrjum við á mjög léttri æfingu. Við réttum hendur út frá hliðunum, beygjum olnbogana og bönkum flötum lófum létt á bringuna, síðan réttum við úr höndunum og kreppum snöggt hnefana og endurtökum allt aftur og aftur," og svo hrópaði hann:
"Koma svo! Banka - kreppa, banka - kreppa, banka - kreppa......!"
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Svalir Íslendingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hér mælir vís rödd úr fortíðinni
15.10.2008 | 09:33
'I believe that banking institutions are more dangerous to our liberties than standing armies. If the American people ever allow private banks to control the issue of their currency, first by inflation, then by deflation, the banks and corporations that will grow up around the banks will deprive the people of all property until their children wake-up homeless on the continent their fathers conquered.'
Thomas Jefferson 1802
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
![]() |
Örlagaríkt lán á gjalddaga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)