Færsluflokkur: Bloggar

Stephen King

Skrifaði einu sinni magnaða smásögu um einmitt þetta, nema hvað maðurinn hafði verið stunginn af flugu og gat ekkert gert vart við sig. Afar spennandi. Afar óhugnanleg.
mbl.is Vaknaði á krufningarborðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju stelpur - og strákar...

...gengur betur næst. Nú er bara að taka Fimleikafélagið á heimavelli!
mbl.is Valur Íslandsmeistari kvenna 2007
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart

Enda á ferðinni spennandi, vel gerðir þættir með góðum efnivið og persónum sem manni er ekki sama um. Það er eitthvað sammannlegt við Örninn, sem veldur því að fólk hvar sem er í heiminum límist við hann. Ég get varla beðið eftir að sjá meira. Ef það er meira til.
mbl.is Örninn flýgur um allan heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætti maður ekki bara að hætta...

blindfullura_hvolfi..að hætta sér út í umferðina. Það eru allir meira og minna fullir eða dópaðir ef marka má fréttir fjölmiðlanna, meira að segja roskna fólkið. Þessi kona má barasta prísa sig sæla að hafa hvorki drepið sjálfa sig né aðra með því að leggja af stað sauðdrukkin og snar.

Hvernig væri að fara að láta þá sem svona hegða sér borga himinháa sekt og þá meina ég kannski nokkur hundruð þúsund, gera bílinn upptækan og láta þá vinna við samfélagsþjónustu í nokkurn tíma? Þá kannski skilur fólk alvarleika málsins og hugsar sig um nokkrum sinnum áður en ekið er af stað eftir nokkra öl eða brennivín. Þrátt fyrir slævða meðvitund man fólk kannski eftir svona viðurlögum.

Vonandi.


mbl.is Ökumaður ók tvisvar útaf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við hjálpum þér að láta drauminn rætast

Mér finnst nú engin ofrausn þó ástralski sjóherinn hjálpi konunum við þetta vandamál. Ef stærri brjóst auka sjálfstraust þeirra getur það ekki verið annað en gott fyrir herinn. Vonandi er hann jafnduglegur við að byggja upp sjálfstraust hermanna sinna með öðrum hætti líka, hvort sem er andlega eða líkamlega. Þeir sem eru með skakkar tennur, sjá illa, innskeifir eða með vörtur á asnalegum stöðum sem geta valdið þeim sálarangri og dregið úr herkænsku þeirra hljóta að fá svipaða meðferð í ástralska sjóhernum. Vonandi.
mbl.is Deilt um hernaðarlegt gildi þess að hafa stór brjóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvers vegna, hvers vegna?

Það virðist hafa verið býsna erfitt í gegnum tíðina að breyta dómvenju á Íslandi. Svo virðist vera sem dómendur vilji gera það hægt og hægt en ekki með einhverjum látum. Það hefur samt slæm áhrif á réttarvitund allra sem til sjá hve glæpir sem snerta peninga virðast oft vera litnir alvarlegri augum af dómstólunum en glæpir gegn fólki, eins og ofbeldisglæpir þeir sem hér hafa verið til umfjöllunar. Það vekur líka furðu fólks þegar refsing er lækkuð milli dómstiga í jafn alvarlegum glæp eins og í þeim sem hér um ræðir. Mig grunar, þó ég vilji ekki vera að gera dómurunum upp einhverjar hugsanir, að þeir hafi litið á samþykki konunnar til kynlífsathafna sem einhvers konar ástæðu til að minnka refsingu afbrotamannsins.

Eins og fram kemur í dóminum fór konan með manninum í herbergi þar sem þau afklæddust og það er í sjálfu sér ekkert að því hana hafi langað að eiga notalega stund með þessum manni. Það sem svo á eftir fylgir er greinilega svo heiftarleg og hryllileg árás á konuna sem í sakleysi sínu er að sænga með þessum manni að nægt hefði hverjum manni til að dæma hann til að minnsta kosti tvöfaldrar þeirrar refsingar sem hann að lokum hlaut. Þær bætur sem honum er gert að greiða konunni eru líka smánarlegar og Hæstarétti til minnkunnar að hafa lækkað þær!

Innan mjög skamms tíma verður þessi maður kominn út aftur og farinn að tæla konur heim með sér, með fagurgala til þess eins að misþyrma þeim að því er virðist. Svona menn verður að stöðva og það verður ekki gert með því einu að dæma þá til korters fangelsisvistar, dómstólar landsins verða að bæta um betur þegar sekt í svona alvarlegu líkamsárásarmáli liggur ljós fyrir.

Það er krafa allra góðra manna.


mbl.is Bloggheimar loga vegna dóms yfir nauðgara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sex prósent???

LíkamsleitÞað  er magnað og eiginlega ógnvekjandi að 6% þeirra sem leitað var á skuli hafa haft á sér fíkniefni og ekki síður merkilegt að 2% báru sveðjur með sér á djammið. Verður ekki að gera því skóna að eingöngu hafið verið leitað á þeim sem lögreglan taldi grunsamlega, hvernig sem hún fer nú að því að sigta það út. Það er allavega ekki spennandi tilhugsun að geta átt von á því í sárasakleysi sínu við skemmtanahald í miðbænum, að fá yfir sig her lögreglumanna í leitarham. En svona er borgin okkar nú barasta orðin og ef til vill er skárra að leita á 92 saklausum og finna 8 grunaða, en leita á engum. Eða hvað? Úff hvað þetta er orðið erfitt.


mbl.is Sérsveitin og fíkniefnadeildin gerðu átak í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefnuljósin og hálfkákið

StefnuljosÉg verð bara að fá að vera með smá nöldur um stefnuljós, þessi ótrúlega þægilegu og einföldu tæki sem með réttri notkun gera umferðina svo miklu þægilegri og skemmtilegri. Mér dettur nú helst til hugar að sumum hafi aldrei verið kenndur tilgangur þessarra ágætu appelsínugulu ljósa sem eru á hverju horni allra bíla. Ótrúlega margir nota þau aldrei, heldur beygja bara í allar áttir án þess að nokkur viti hvað þeir ætla sér, þessum einstaklingum flestum virðist þykja það fremur hallærislegt að brúka þessi ljós. Enn aðrir nota þau EFTIR að þeir hafa tekið beygjuna, og kemur þar hin ríka sagnahefð íslendinga heldur betur í ljós. Svo eru þeir sem nota þessi ágætu viðvörunartæki í miðri beygju, eftir að þeir eru hvort eð búnir að skipta um akrein eða byrjaðir að taka beygjuna inn í næstu götu. Ég skil ekki hugmyndafræðina að baki þeirri notkun, hún tengist örugglega hvorki sagnahefðinni né þeirri algeru leti að nenna aldrei að nota stefnuljósin. Ætli þetta sé hið heimsfræga íslenska hálfkák?

Önnur hönd á titli

..og hin... Ég ætla að vona að Valsstelpur klári málið endanlega í næstu umferð og færi Völsurum heim sanninn um að stelpnaboltinn þarf að fá alla þá athygli sem hann á skilið. Það er ekki ofsögum sagt að stelpurnar hafa staðið sig rosalega vel í sumar og eiga titilinn auðvitað algerlega skilinn. En spyrjum að leikslokum, það er ein umferð eftir og aldrei neitt öruggt fyrr en að öllum leikjum loknum. Þangað til fögnum við þessum flotta sigri í kvöld.
mbl.is ÍR féll úr Landsbankadeild kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neikvæðar auglýsingar

Ekki langar mig til að fara að versla við SPRON. Nú eru þeir að keyra á auglýsingum sem eru svo neikvæðar að þær eru hættar að vera fyndnar og eru komnar í vandræðalega flokkinn. Í þessum auglýsingum er fólk skilið útundan með ýmsa hluti vegna þess að það er ekki í einhverri söfnun hjá Spron. Þvílík endemis vitleysa, þetta er ekki eitthvað sem vekur áhuga á að fara í viðskipti. Hin aðferðin að vera jákvæður eykur auðvitað áhugann viðskiptum, en ekki þessi. Sorry.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband