Hvernig stendur á þessu?

Við höfum gortað okkur af því Íslendingar í gegnum tíðina að hér sé svo öruggt að búa en hver er reyndin. Reyndin virðist þó vera sú að hér fær fátt að vera í friði sem ekki er beinlínis vaktað allan sólarhringinn. Öll þekkjum við veggjakrotið og þá döpurlegu staðreynd að símaklefar hafa sjaldan átt langa ævi hér um slóðir. Enn ein birtingarmyndin er þessi vandalismi í Laugardalnum í nótt, ég velti fyrir mér hvað það er sem veldur þessarri vanvirðingu fyrir eigum annarra og sameignum okkar?

 Svo var annað sem ég tók eftir í gær; ég var að þvælast um miðbæinn, kíkti í Hljómskálagarðinn og garðinn við Fríkirkjuveg 11. Þar er einhver slæðingur af styttum og ekki nema örfáar eru merktar með heiti og nafni listamannsins sem gerði þær.  Það er svolítið með styttur eins og landslag, þær missa svolítið gildi sitt ef þær heita ekki neitt. Það getur varla verið mikið mál að setja lítinn skjöld á fótstallinn svo við þessir forvitnu getum vitað hvað er þarna fyrir augum okkar. Nema skjöldunum sé alltaf stolið jafnóðum. Það gæti auðvitað verið. 

Ég leit aðeins inn í Hljómskálann sem er búið að breyta í kaffihús og það er vel að það skuli vera líf í þessu fornfræga húsi.  Það hefði samt mátt vera aðeins meira líf í"gengilbeinunum" þar. Þær voru hálfönugar og höfðu tiltölulega lítinn áhuga á gestum sínum.  Það var ekki fyrr en að landskunn manneskja stóð upp frá borði sínu og þakkaði fyrir beinann að eitthvað líf færðist í stúlkurnar, þær kvöddu óskaplega glaðlega og settu svo upp sama súra svipinn. 

Svona viðmót er auðvelt að laga.

 


mbl.is Kveikt í Guttormi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á eitthvað svo vel við á svona degi


Það fer nefnilega allt einhvern veginn

Vér förum, komum og förum á ný

og fæstir lærum vér neitt á því,

og hver er ei hvíldinni feginn?

Og sannspár varð Drottinn á sinni tíð

og svo mun ég einnig á minni tíð:

Að allt fer það einhvern veginn.

(Kristján frá Djúpalæk)


mbl.is Samdrætti lokið í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríð

Sem einstaklingur einkastríð

hvern ævidag ég hey.

Og undir hæl er löngum lagt

hvort lifi ég eða dey.

Og heimur einnig heyr sitt stríð.

En hvort mun sigur fenginn?

 

Í stríði mínu er stundarvon.

Í stríði heimsins engin.

(Kristján frá Djúpalæk)


mbl.is 280 milljarðar í nýju bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahérna...

Þessu tökum við auðvitað þegjandi - minnkum skammtinn og keyrum aðeins minna. Garg!

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda...


mbl.is N1 hækkar bensínverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sami dagur...

..kemur auðvitað aldrei aftur, nema í Groundhog day. Hefði ekki hljómað betur að segja einfaldlega að myndin yrði frumsýnd réttu ári eftir að Geir H. Haarde flutti fræga ræðu sína (sem var þó frekar ávarp) um efnahagsástandið?

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is og Morgunblaðsins.


mbl.is Guð blessi Ísland á Arte og NRD
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brá svakalega

Enda hélt ég að hér væri á ferðinni frétt um að Birnu borgarstjóra hefði verið orðið nóg boðið um allt skokkið á fólki umhverfis Ráðhúsið... hvað veit maður?

 

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifara...

 


mbl.is Birna beit skokkara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blogg...

Er að spá í að byrja að blogga aftur en ætla að láta eiga sig að tala um Icesave, kreppu, stjórnmál og aðra óáran. Ef ég get hamið mig.

Mynd af stúlkunni sem um ræðir

Noemi Letizia Það er alveg nauðsynlegt til að fólk skilji hvað er á ferðinni að sjá mynd af manneskjunni sem hefur heillað Berlusconi svona gersamlega. En mogganum finnst greinilega alveg nóg að birta mynd af þeim gamla...sem við höfum þó séð alveg nógu oft.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins. Og þar hafiði það!

 


mbl.is Þóttist vera kærastinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minni á þáttinn Í vikulokin á Útvarpi Sögu kl. 13 í dag


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband