Sumir draga sig í hlé

Aðrir ekki. Þó á móti blási eru sumir svo miklir baráttumenn að þeir gefast aldrei upp. Ég minni á frjálsa bloggsvæðið hér: www.blekpennar.com sem var sett á laggirnar í kjölfar þess að stofnandanum Helgu Guðrúnu Eiríksdóttur var bannað af blog.is að tengja sínar bráðskemmtilegu og kraftmiklu bloggfærslur við fréttir. Þetta er alvöru, kíkið inn.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Naomi Campbell íhugar að draga sig í hlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

39

In the year of thirty-nine
Assembled here the volunteers
In the days when lands were few
Here the ship sailed out into the blue and sunny morn
The sweetest sight ever seen
And the night followed day
And the story tellers say
That the score brave souls inside
For many a lonely day
Sailed across the milky seas
Never looked back never feared never cried

Dont you hear my call
Though youre many years away
Dont you hear me calling you
Write your letters in the sand
For the day Ill take your hand
In the land that our grand-children knew

in the year of thirty-nine
Came a ship from the blue
The volunteers came home that day
And they bring good news
Of a world so newly born
Though their hearts so heavily weigh
For the earth is old and grey
Little darlin well away
But my love this cannot be
Oh so many years have gone
Though Im older than a year
Your mothers eyes from your eyes cry to me

Dont you hear my call
Though youre many years away
Dont you hear me calling you
Write your letters in the sand
For the day Ill take your hand
In the land that our grand-children knew

Dont you hear my call
Though youre many years away
Dont you hear me calling you
All your letters in the sand
Cannot heal me like your hand
For my life still ahead pity me

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is 33 sóttu um starf forstjóra Sjúkratryggingastofnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaðar fyrirsagnir

Úr slúðurdálki ónefnds vefmiðils. Og þetta er bara brot af þeim snilldarfyrirsögnum sem sést hafa í september:

sludur

Háskælandi fegurðardrottning á bikiní!

Nös Kate Moss vekur athygli!

Ómáluð Celine Dion veldur uppnámi!

Jennifer Hudson sagði já - myndir!

Óförðuð Eva Longoria veldur fjölmiðlafári!

Mills sögð lygasjúk!

Heather Mills er lygari og tík, segir upplýsingafulltrúi!

Vandræðaleg aðþrengd Eva Longoria!

Upphandleggir Madonnu vekja athygli!

Ronaldo kaupir nýjan leikfélaga - myndir!

Gagnrýnd fyrir að vera grindhoruð - myndir!

Hryggur David tekst á við kynlílfsfíknina!

Krumpuð kné Elle McPherson vekja athygli!

Pamela nærist á ruslfæði á hlaupum!

Jón Gnarr er ekki Hannes Hólmsteinn!

Britney umvafin lífvörðum bláedrú!

Sienna Miller áreitt hvert sem hún fer!

Spurt er um blöðrubólgu!

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


Lögfræðingur, viðskiptafræðingur og bóndi

Á salernisaðstöðu á fínum veitingastað standa viðskiptafræðingur, lögfræðingur og bóndi hlið við hlið og nota pissuskálarnar.

Viðskiptafræðingurinn klárar, rennir upp og byrjar að þvo, eða bókstaflega skrúbba á sér hendurnar....alveg upp að olnbogum.
Notaði síðan um það bil 20 bréf til að þurrka sér. Hann snýr sér að hinum og segir: " Ég gekk í Harvard, þar kenndu þeir okkur að vera hreinlegir."


Lögfræðingurinn kláraði og bleytti fingurgómana, greip eitt bréf og sagði:" Ég lærði í Princeton, þar kenndu þeir okkur að vera umhverfisvænir."


Bóndinn renndi upp og á leiðinni út segir hann:" Ég lærði á Hvanneyri, þar var okkur kennt að míga ekki á hendurnar á okkur"!

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

 


mbl.is Fær ekki að verja Jón Ólafsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvumpinn

Ég held að ég væri nú þegar farinn að leita mér að annarri vinnu, hefði snaróður, útsmoginn þjófur með álklæddan bakboka, reynt að stinga mig með skærum.

Það er að mínu mati með ólíkindum hvað ofbeldi og lítilsvirðing fyrir öðru fólki hefur aukist í þessu pínulitla samfélagi okkar. Árásir af öllu tagi eru orðnar daglegt brauð í fréttum og ætli séu ekki líkindi til þess að aðeins hluti þess sem raunverulega gerist komist í fréttir?

Það væri áhugavert að fá vangaveltur frá fólki hvað það raunverulega er sem veldur öllum þessum óróa. Einhverjar hugmyndir, gott fólk?

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Hnuplað fyrir mörg hundruð þúsund í Smáralind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar Michael hafði húðlit

Þetta lag gáfu þeir félagarnir Paul McCartney og Michael Jackson út síðla árs 1983 og það sat á toppi Billboard listans fram yfir áramótin.  Þetta var í annað skipti sem Paul og Michael sungu saman lag, fyrsta lagið var The girl is mine sem allir ættu að muna eftir. Eiginkona Pauls, Linda og systir Michaels La Toya leika með þeim í þessu myndbandi sem sýnir ferð svikahrappa um uppsveitir Villta Vestursins.

Til gamans má geta að næsta lag sem Michael Jackson gaf út var Þrillerinn klassíski. Þetta var í síðasta skipti, hingað til, sem Paul náði lagi á topp Billboard listans, en hann er ekkert dauður úr öllum æðum enn, kallinn.  Owner of a lonely heart með hljómsveitinni Yes tók svo við af Say say say á toppi listans.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

 


Skipulagt innsæi

Kennari

Sporðdreki: Innsæi þitt getur af sér kærkomna skipulagningu í vinnu. Kannski skráirðu þig á námskeið eða færð harðskeyttan kennara í lið með þér.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


Og ég sem keypti fyrir milljarð í gær eftir að gengið lagaðist aðeins

 tap

Smá klúður. Gengur betur næst. Eða þá að ég finn einhvern til að kaupa af mér á ímynduðu yfirverði. Segi bara að það muni ganga rosalega vel á fyrsta ársfjórðungi 2009 og von sé um gríðarlega aukningu eigin fjár á öðrum.  Svo gæti ég bætt við: Reksturinn einkennist af áframhaldandi vexti í tekjum svo og yfirtöku á erlendum félögum og samþættingu á rekstri þeirra. Það kallar aftur á móti á töluverðan kostnað m.a. vegna uppsagna starfsmanna erlendis og fleiri þátta sem munu samt sem áður til lengri tíma skila félaginu betri afkomu.

Hlýtur að virka!

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Eimskip lækkar um 6,8%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að slá ryki í augu almennings

speeding

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Olíuverð lækkar þrátt fyrir Ike
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegir Skotar

kilt 

Ég ætla nú ekkert að tala um leikinn sem var í sjálfu sér hin bezta skemmtun. Heldur ætla ég að tala um þessa sérstöku pilsklæddu menn, sem voru eins og maurar á þúfu um allt, eftir leikinn. Þrátt fyrir sigur voru þeir frekar alvarlegir á svip, flestir, nema hugsanlega þeir sem höfðu fengið sér hvað mest af Loch Lomond fyrir leik. Þeir létu glaðhlakkalega og létu sig falla í þúfurnar umhverfis Þjóðarleikvanginn, dönsuðu og sungu. Ég verð að viðurkenna að mér finnst búningarnir þeirra flottir. Margir þeirra voru í stórglæsilegum jökkum og með fagurskreytt höfuðföt við Kiltin sín og sumir burðuðust meira að segja með sekkjapípur og reyndu margir að kreista úr þeim tónlist.

Það sem vakti samt mesta athygli mína var hegðun Skotanna, atferli og framkoma. Þeir brostu og veifuðu og heilsuðu Íslendingum með handabandi og þökkuðu þeim fyrir leikinn. Það var ekki til í þeim einhver hroki yfir sigrinum, þeir bara höfðu voða gaman af því að vera þarna og voru greinilega á leið í miðbæinn til að gleðjast enn meira.

Hversu kátir og glaðir þeir verða eftir fagnaðarlætin í fyrramálið er svo verra að spá um en - mér finnst Skotar skemmtilegir.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Skotar unnu nauman sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband