Þjóð þykjustuleiksins

„Ástæða þess að Yang litla var ekki valin til að koma fram er sú að við vildum sýna ákveðna ímynd, við vorum að hugsa um hvað væri best fyrir þjóðina.“ 

Kínversk yfirvöld hafa sýnt það og sannað að þau vilja að land þeirra sé leiksvið, þar sem allt virðist slétt og fellt á yfirborðinu. Þykjustuland.  Eiginlega svo gervilegt að það er óhugnanlegt. Það að vilja ekki sýna ofurvenjulega, litla stelpu þó hún sé búlduleit og með skakka tönn er einfaldlega toppur fáránleika-ísjakans. Í Kína er bannað að eiga við þunglyndi að stríða og vei þeim sem burðast með enn þyngri andlegar byrðar. Í Kína er bannað að vera líkamlega veikur, að minnsta kosti eru eyðni og alvarlegir smitsjúkdómar hreinlega bannaðir. Ég veit svosem ekki hvað fleira er óæskilegt þar, en þetta dugar mér alveg.

Ég veit heldur ekki nákvæmlega hvað Kínverjar eru að reyna með þessum sýndarleik; fólk er almennt ekki svo skyni skroppið að það geri sér ekki grein fyrir að skakkar tennur og eyðni eru til í Kína sem annars staðar. Því hlýtur það að vera hlutverk fulltrúa íslenskra stjórnvalda og annara landa sem telja sig boðbera mannréttinda og manngæsku, sem þekkst hafa boð um að vera viðstaddir Ólympíuleikana að benda kínverskum ráðamönnum á þessa undarlegu pólítík, að maður tali ekki um að mótmæla mannréttindabrotum í Tíbet og víðar, þögnin yfir þeim er skelfilegur blettur á mannkyninu. Það má ekki óttast Kínverja þó þeir séu stórir og sterkir. Það var nefnilega oft þannig að mesta hrekkjusvínið í skólanum var með mestu minnimáttarkenndina, kannski þarf bara að hjálpa kínverskum stjórnvöldum að komast yfir minnimáttarkennd... hver veit?

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Allt í plati í Peking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Hallgrímur minn. Svo skal böl bæta.... að benda á eitthvað annað.

Markús frá Djúpalæk, 12.8.2008 kl. 10:48

2 identicon

Hrokagikkirnir í vestri stunda pyntingar, meðal annars á börnum, en ég er sammála með kína, við eigum ekki bara að mæta þarna og skríða fyrir alræðisherrunum, heldur heimta að okkar opinberu gestir opni munninn og "leiðbeini" blóðhundunum.  Ég er hinsvegar viss um að það gerist ekki, heldur munu þau mala af ánægju og dreyma um ísland í sömu hlekkjum og kína.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 11:14

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þetta minnir óþægilega á mbl.is

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 12.8.2008 kl. 12:13

4 identicon

Flott athugasemd Hallgrímur. Hún verður enn betri ef maður setur Helgu Guðrúnu í hlutverk hrokagikkjanna úr vestri og Kínversk stjórnvöld í hlutverk allra hinna :)

NN (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 12:21

5 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Það er einmitt fáránleikinn sem er fréttnæmur og afhjúpar allt hitt....

Markús frá Djúpalæk, 12.8.2008 kl. 12:36

6 Smámynd: Beturvitringur

Njótum leikanna og sjónarspilsins. EN þjóðarleiðtogar NOTI tækifærið til að lýsa vanþóknun sinni/okkar/allra á viðbjóðnum utan leikvallar.

Beturvitringur, 12.8.2008 kl. 21:33

7 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

....hvaða æsingur er þetta?

Hrönn Sigurðardóttir, 16.8.2008 kl. 00:45

8 Smámynd: Beturvitringur

alveg sérstök tegund af æsingi, - hinn ljúfi æsingur 

Beturvitringur, 16.8.2008 kl. 04:35

9 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

 alveg sérstakur þessi ljúfi...

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 16.8.2008 kl. 04:48

10 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Já, ég er alveg brjálaður

Markús frá Djúpalæk, 17.8.2008 kl. 22:45

11 identicon

Ég er að hlusta á þig í útvarpinu núna,hvar er Katrín Snædal á hún ekki að vera á mánudögum?

anna (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 13:12

12 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Katrín Snæhólm er búin að vera í sumarfríi.

Markús frá Djúpalæk, 18.8.2008 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband