Tilboð frá Iceland Express

Nú er mikið auglýst sérfargjald með Iceland Express til útlanda í nóvember. Óneitanlega lítur þetta rosalega vel út þangað til við bætast skattar og önnur gjöld. Hver svosem þau eru. Dæmið hérna sýnir fargjald fyrir tvo til Lundúna. Ofan á þetta eiga svo eftir að bætast 1900 kr. á mann í forfallagjald ef fólk vill. Reyndar er heildarverið alls ekki hátt, reyndar mjög lágt, en það væri enn hagstæðara ef þessir dularfullu skattar og gjöld væru ekki að þvælast þarna.







Farmiði fyrir fullorðinn út 2 x 2.895,00 ISK5.790,00 ISK
Farmiði fyrir fullorðinn heim 2 x 3.990,00 ISK7.980,00 ISK
Skattar og aðrar greiðslur19.180,00 ISK
    Fullorðin skattar og aðrar greiðslur 2 x 9.590,00 ISK19.180,00 ISK


 Samtals32.950,00 ISK

    Fullorðnir samtals 2 x 16.475,00 ISK32.950,00 ISK


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Hvenar eigum við svo að skella okkur Krúsi?

S. Lúther Gestsson, 27.10.2007 kl. 11:03

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Nú er bara að byrja að safna fyrir sköttum og öðrum gjöldum.

Markús frá Djúpalæk, 28.10.2007 kl. 00:56

3 Smámynd: Jens Guð

  Hvaða skattar og önnur gjöld geta verið svona há?  Stundum auglýsir Iceland Express 5980 kr ferðin með sköttum og öllum gjöldum.  Það er eitthvert svindl í þessu. 

Jens Guð, 28.10.2007 kl. 21:49

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Þetta eru flugvallaskattar og eitthvað sem kallað er eldsneytisgjald. Frábær aðferð til að ná í örlítið meiri pening. Hugsið ykkur hvað það myndi verða miklu léttara að vera íslendingur ef þessi aukagjöld hyrfu og hægt væri að komast til útlanda fyrir kannski 10-12 þúsund. Björgvin þarf að taka á þessu.

Markús frá Djúpalæk, 29.10.2007 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband