Turnarnir tveir

ÞorvaldurGylfasonólistefFylgist með þættinum í vikulokin á Útvarpi Sögu næsta laugardag.  

Tveir af merkilegustu mönnum íslenzks samtíma munu heimsækja okkur Halldór E þann daginn. Þeir Þorvaldur Gylfason sem nýverið var valinn maður ársins 2008 á Útvarpi Sögu og Ólafur Stefánsson íþróttamaður ársins munu leiða saman hesta sína, sem verður án efa mjög áhugavert.

Ég neita því ekki að ég hlakka mikið til að sjá og heyra hvað gerist þegar þessir tveir snillingar hittast. Þeir verða hjá okkur milli kl. 14 og 15 á laugardaginn og ég hvet alla sem á annað borð hafa eyru að hlusta með andakt.

Aðrir dagskrárliðir eins og James Bond lag vikunnar verða á sínum stað. Svo er aldrei að vita nema við hefjum vondulagakeppnina til vegs og virðingar á ný.  Ekki má heldur gleyma því að við munum velja mann vikunnar með aðstoð hlustenda, þannig að nú er um að gera að skerpa kvarnirnar og upphugsa þann sem þið teljið helst til þeirrar nafnbótar hafa unnið þessa fyrstu viku ársins 2009 og hringja í okkur Halldór næstkomandi laugardag. Síminn er 588-1994.

Hlökkum til að heyra í ykkur.

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Þvílíkir snillingar hjá þér dag eftir dag! Svo ferðu að finna einhverjar flottar konur til að tala við :-)

Sigþrúður Harðardóttir, 9.1.2009 kl. 09:01

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Já, ég gleymdi auðvitað að segja frá stórmerkilegri konu sem var í viðtali hjá mér í gær. Það var dr. Arnfríður Guðmundsdóttir nýskipaður prófessor við Guðfræðideild Háskóla Íslands. Á mánudagsmorgun fæ ég Ellisif Björnsdóttur heyrnarfræðing í heimsókn og á þriðjudagsmorguninn verður Eygló Harðardóttir þingmaður í spjalli um frumvarp sem tengist fólki og fyrirtækjum í greiðsluerfiðleikum.

Markús frá Djúpalæk, 9.1.2009 kl. 14:50

3 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæll minn kæri!

Markús frá Djúpalæk! Gastu ekki fundið fallegra bæjar nafn?

Mér finnst flottara Sólbakki eða Vinaskógur

Annars bara allt í góðu hér!

Kveðja  til þín í Djúpalæk

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 13.1.2009 kl. 20:09

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Sæl Halldóra, þakka þér fyrir góðar kveðjur. Sömuleiðis, til þín og þinna.

Markús frá Djúpalæk, 14.1.2009 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband