Af gáfnafari ráðherra

Davíð Oddsson er í Washington hjá George Bush. Eftir að þeir hafa 
lokið við að borða kvöldmat segir Bush: “Well David, I dont’t know 
what you think of the members of your Cabinet, but mine are all bright 
and brilliant.” “How do you know?” Spyr Davið. “Oh well, it’s simple”, 
segir Bush. “They all have to take special tests before they can be a 
minister. Wait a second”. Hann veifar til Colin Powell og segir við 
hann: “Tell me Colin, who is the child of your father and of your 
mother who is not your brother and is not your sister?” “Ah, that’s 
simple Mr. President”, segir Colin, “it is me!” “Well done, Colin,” 
segir Bush og Davið er alveg heillaður!

Eftir að viðræðum þeirra er lokið sest Davíð upp í flugvél og heldur 
aftur heim til Íslands. Á leiðinni heim leiðir Davíð hugann að því 
hver sé í raun greindarvísitölustaða hinna ráðherranna í ríkistjórn 
hans. Þegar hann mætir aftur á skrifstofuna hringir hann í Guðna 
Ágústsson og biður hann að kíkja við hjá sér. Guðni kemur til hans að 
vörmu spori og Davíð segir þá við hann um leið: “Guðni, segðu mér nú, 
hvert er barn þíns föður og móður sem hvorki er þinn bróðir né 
systir?” Guðni hugsar sig um vel og lengi án þess að geta svarað. “Ja 
hérna, þessi var flókin! Má ég ekki fá að hugsa mig um dálitla stund?” 
Davíð vill ekki leggja óþarfa pressu á Guðna svo hann segir: “Jú allt 
í lagi, þú færð 24 stunda umhugsunarfrest.” Guðni snýr aftur til 
skrifstofu sinnar og hugsar nú svo stíft að það brakar í 
heilaberkinum. Eftir að hafa setið og hugsað um hríð ákveður hann að 
kalla saman starfsfólk sitt í landbúnaðarráðaneytinu og leggja 
spurninguna fyrir þau. Allt kemur fyrir ekki. Enginn hefur svarið við 
þessari gestaþraut Davíðs. Eftir 20 stundir hefur Guðni enn enga lausn 
fundið.

Hann verður nú afar áhyggjufullur því hann skilur þó það að svarið við 
þessari spurningu getur þýtt af eða á fyrir hann sem ráðherra í 
ríkistjórn Davíðs og nú eru bara 4 tímar eftir af frestinum. Þá dettur 
honum ráð í hug!: “Ég spyr bara Geir H. Haarde! Hann er bæði 
talnaglöggur og útsjónarsamur, ef einhver veit það, þá er það hann!” 
Guðni drífur sig yfir til Geirs og segir: “Geir, þú verður að hjálpa 
mér, Davíð fól mér að leysa þraut þar sem ég held að það ráðist hvort 
ég held ráðherrastöðu minni eftir því hvort mér tekst að svara rétt 
eður ei. “Hver er þrautin?” spyr Geir. “Hlustaðu nú”, segir Guðni. 
“Hvert er barn þíns föður og móður sem hvorki er þinn bróðir né 
systir?” “Þetta er einfalt”, segir Geir. “Þetta er ég!” “Að 
sjálfsöðgu!”, segir Guðni og hleypur yfir til að segja Davíð svarið. 
“Davíð, Davíð, nú hef ég svarið! Þetta er Geir H. Haarde!” Davíð lítur 
upp á Guðna raunamæddum augum og segir: “Mér þykir það leitt Guðni 
minn en það er ekki rétt. Rétt svar er Colin Powell”

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.



 


mbl.is Tveir bankar í greiðslustöðvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Bogason

HEHEHEHEHEH  algerlega brilliant - er ennþá að hlægja

Guðmundur Bogason, 22.11.2008 kl. 12:13

2 identicon

Davíð gerði þetta kv frá Bónus

ADOLF (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 12:26

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Frábær þessi, Markús! – Með góðri kveðju,

Jón Valur Jensson, 22.11.2008 kl. 13:23

4 Smámynd: Beturvitringur

það er nauðsynlegt að fylgjast með ÖLLUM vísitölum! góður

Beturvitringur, 22.11.2008 kl. 20:43

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Sporðdrekinn, 22.11.2008 kl. 21:47

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

þessi var góður.

Sigurjón Þórðarson, 24.11.2008 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband