Áhrif bankakreppunnar leynast víða

GamlitoffarinnGamla fólkið á elliheimili úti á landi var orðið afar þrúgað og meðtekið af efnahagsbölsýnissíbyljunni í fjölmiðlunum.
Forstöðukonan hafði miklar áhyggjur af þessu.

Í morgun var leikfimi á heimilinu. Forstöðukonan bað íþróttafræðinginn að vera nú heldur á léttu nótunum og fyrir alla muni ekki minnast á efnahagsmál eða þrengingar.

Þetta væri alveg að fara með gamla fólkið.

Íþróttafræðingurinn sagði það ekki nema sjálfsagt.

Svona hóf hann tímann:

"Kæru vinir! Í dag byrjum við á mjög léttri æfingu. Við réttum hendur út frá hliðunum, beygjum olnbogana og bönkum flötum lófum létt á bringuna, síðan réttum við úr höndunum og kreppum snöggt hnefana og endurtökum allt aftur og aftur," og svo hrópaði hann:

"Koma svo! Banka - kreppa, banka - kreppa, banka - kreppa......!"

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Svalir Íslendingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Þetta er náttúrulega alltaf spurning um nálgun.

Eiríkur Harðarson, 15.10.2008 kl. 13:08

2 Smámynd: Gunnar Ásgeir Ásgeirsson

Þetta minnir mig nú bara á þegar ég var í skólasundinu..

 Begja, kreppa, sundur, saman

Gunnar Ásgeir Ásgeirsson, 17.10.2008 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband