Alsæla á mbl.is

Það er nú voða gott að Mischa sé svona ánægð með kroppinn sinn - og ekki verra að Selma Hayek sé eins ánægð með litla barnið sitt, en samkvæmt annarri frétt á mbl.is er hún alsæl í móðurhlutverkinu og segir að það að verða móðir hafi kennt henni að meta lífið á ný. 

Það er ekki nóg með að krónan sé í frjálsu falli heldur er gengisfelling á orðum orðin þjóðaríþrótt á Íslandi. Mætti ekki aðeins draga úr ofgnóttinni þar án þess að merkingin tapaði sér?

Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.


mbl.is Alsæl með líkamann þrátt fyrir appelsínuhúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Alsæl með líkamann þrátt fyrir appelsínuhúð ! ha ha ha þvílíka bullið. Ég er með appelsínuhúð..... hún veldur mér ekki vanlíðan. Er einhver að pæla í appelsínuhúð aðrir en papparassar sem eltast við fræga fólkið ?

Linda litla, 11.5.2008 kl. 09:39

2 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Nja... en alltaf virðist fólk lesa svona stórtíðindi - ég geri það stundum.. oft jafnvel. En hugsa yfirleitt að lestri loknum Who cares?

Markús frá Djúpalæk, 11.5.2008 kl. 10:35

3 Smámynd: Beturvitringur

Ég fæ útrás fyrir hneykslunar- og slúðurþörfina við lestur um áhyggjur ofurkvendanna af kotasælurössum og t.d. "sex and ziggies" megrunaraðferðar frú Beckham.

Beturvitringur, 11.5.2008 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband