Það er mikið til í þessu

0upstairsdowMaður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er.

Konan svaraði: Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40. og 41.
Norðlægrar breiddargráðu og milli 59. og 60. Vestlægrar lengdargráðu.

Þú hlýtur að vinna við tölvur, sagði loftbelgsmaðurinn.

Það geri ég, svaraði konan. Hvernig vissirðu það ?

, svaraði maðurinn, allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp frá þér.  Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína.

Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun.

, sagði maðurinn. En hvernig vissir þú það?

, sagði konan, þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara.
Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern vegin mín sök.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Súpergóður þessi!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 12.3.2008 kl. 12:37

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 12.3.2008 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband