Dr. Jekyll og Mr. Hyde?

Eða hvað?  Kannski ekki alveg, en...

Svona sýndarmennska hefur tíðkast frá aldaöðli og til margar frægar sögur af slíku. Það er samt grátbroslegt að hugsa til þess að til skuli vera menn sem hegða sér eins og milljarðamæringar, ganga í flottum fötum, virðast berast mikið á og umgangast fræga fólkið eftir megni. Þegar þeir yfirgefa hina dýrðlegu fagnaði fara þeir svo einir og yfirgefnir heim í saggafyllta kjallaraholu sem geymir ekkert nema vonbrigði og depurð.

Svo reyna þeir að grípa gæsir sem gefast og beita öllum brögðum í bókinni til að ná sér í smá aur.


mbl.is Meintur fjárkúgari af íslenskum ættum lifði tvöföldu lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Óneitanlega satt. Bara verra þegar söguefnið lætur hugmyndaauðgi sína bitna á alsaklausu fólki. En margt verra en það gerist í veröldinni, svosem. Kannski verður gerð stórmynd með Leonardo DiCaprio í hlutverki gosans...hvað veit maður?

Markús frá Djúpalæk, 31.10.2007 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband